Andvari - 01.01.1913, Blaðsíða 94
32
Fiskirannsóknir
merkja og sleppa aftur lifandi þessum íiskum. Merk-
ingar þessar voru sumpart (og mestmegnis) fram-
kvæmdar á hafrannsóknaskipinu »Thor«, undir um-
sjón Dr. Joh. Sclimidt, sumpart á mótorbát frá »Thor«
af Jóakím Guðbjartssyni, stýrimanni á »Thor«, og
sumparl á íslenzkum botnvörpuskipum af G. Hansen
skipstjóra á »Thor«. Merking þessi er fólgin í því,
að beinhnappar með löluplötu úr látúni eru festir
með silfurvír á flskinn, á þorski á kjálkabarðið, á
skarkola á bakið (hægri hliðina) við uggarótina.
Við tilraunir þessar er gert ráð fyrir, að eitthvað
veiðist aflur af hinum rnerktu fiskum við vanalegar
veiðar á þeirn svæðum, sem fiskurinn fer um á eftir.
Afdrif merkinganna eru því mjög undir því komin,
að íiskimenn taki vel eftir því, hvort merki sé á þess-
konar fiskum, þegar þeir veiðast, og að þeir skili
merkjunum. Til þess að hvelja þá til þess hefir
verið borguð 1 króna fyrir hvert merki, sem skilað
hefir verið, ásamt upplýsingum um lengd íisksins
og stað og stund, þegar liann fékst; en þrátt fyrir
áskoranir í blöðum og á annan hátt, bæði hér á
landi og í öðrum löndum, hefir orðið töluverð van-
ræksla á því frá fiskimanna liálfu, að skila fengnum
merkjum, og ber það vott um liirðuleysi eða skiln-
ingsleysi á þessu, fyrir þá svo mjög merkilega, máli.
Því að sjálfsögðu ætti öllum fiskimönnum að vera
það ljúft að styðja að mikilsverðum þekkingarauka
á lííi þeirra skepna, sem atvinna þeirra er svo mjög háð.
Sjálfur hefi eg verið nokkuð riðinn við merking-
ar þessar frá byrjun og hefi reynt eftir mætti að
styðja að því, að þær geti borið sem beztan árangur.
Tók eg bæði að mér að safna merkjum frá hérlend-
um fiskimönnum og sendi út áskoranir til þeirra