Andvari - 01.01.1913, Blaðsíða 92
30
Fiskirannsóknir
Þessi yfirlit sjrna, hvernig mjög misgömlum i'iski
er blandað saman í veiðinni á sama stað, og hve
mikið af hverjum ársflokki er í liverl skifti. Siná-
síld og smá miðlungssíld er eingöngu í Patriksfjarð-
ar-síldinni, en vantar i sildina frá hinum stöðunum,
og kemur það víst af því, að smásíldin er að jafn-
aði inni í fjörðum og sjálfsagt Htið saman við stór-
síld, en ekki af því að brúkuð væri net með mis-
stórum riðli. Faxaflóasíldin var veidd í stórriðin
net, en hin öli í smáriðin (net og snyrpinót).
Einkennilegt er það, hve smá Patriksfjarðarsíld-
in er í samanburði við aldurinn; meðallengd á 3, 4
og 5 vetra síld að eins 18,8, 21,8 og 21,5 cm. Aftur
á móti er meðallengd sömu aldursflokka í Faxallóa-
síldinni 26, 39 og 31,8 cm. og á 4 og 5 vetra síld
frá Norðurlandi enn stærri. Sýnir þetta, að æði mik-
ill stærðarmunur getur verið á jafngamalli síld, og
má vera, að það fari eftir því, livort síldin er vaxin
upp í heitum eða köldum sjó. Annars er allgott
samræmi milli slærðar þeirrar, sem eg hefi fundið á
síldinni af ýmsum aldursflokkum og þeirrar, sem
Norðmenn hafa fundið, þegar þess er gætt, að þeir
miða stærðina við enda hvers vaxlarskeiðs (vetrar-
línuna), en eg við stærðina, sem fiskurinn hafði þegar
hann var veiddur.
Sem dæmi þess, hvernig þeir reikna út lengd
síldar á hverju aldursári eftir fjarlægðinni milli vetr-
arlínanna á hreistrinu, vil eg tilfæra hér elztu síld-
ina, sem þeir liafa fengið (veidd við Siglunes); hún
var 39 cm. löng, gotin 1889 og því 19 ára gömul. í
lok hvers vaxtarskeiðs liafði hún þessa lengd:
1889 8,4 cm. 1890 16,8 1891 22,4 1892 26,0
1893 28,4 cm. 1894 30,2 1895 31,9 1896 33,3