Andvari - 01.01.1913, Blaðsíða 212
150
Fiskisýningin
Þannig lagaðar vélar eru að vísu handhægar, en
dýrar, og naumast viðeigandi hjá okkur, er liöfuin
nægan ís til frystunar. í reykingarhúsunum gat
maður séð reyktan allskonar fisk, svo sem lax,
silung, síld, ýsu, upsa, lúðu, rauðmaga o. 11., og
var þar margt að sjá, er íslendingar hefðu getað
lært af, því að það er enginn vafi á því, að rneira
má gera að reykingum hér en gert er, bæði til
notkunar á heimilum, og jafnvel máske til úlflutn-
ings. Reykt var í innmúruðum ofnum, sem ekki
eru mjög dýrir (um 80 kr. óuppsettir, að mig minn-
ir), en utan sýningarinnar kynti eg mér aðra ofna,
af eldri gerð, sem eru mikið ódýrari, en að mínu á-
liti hentugri en hinir, og er auðvelt fyrir nrenn að
setja þá upp á heimilum sínum, og hafa þeir þann
kost, að í þeim má reykja kjöt, sem naumast er
hægt í hinum. Fiskur reykist yfirleitt á rnjög stutt-
urn tíma, og er ólíkt ljúffengari, ef hann er reyktur
ineð réttri aðferð. Eg sá síld reykta, sem legið
hafði í salti 2—3 klt.; var liún hengd til þurks
lítinn tírna meðan vatnið þornaði af henni, síðan
hengd inn í reykingarofninn og kyntur eldur (helzt
með brenni) undir lienni í 10 —15 mínútur; þá var
eldurinn kæfður með sagi og allur reykur byrgður
inni í 2 klt. Eftir það var hún tekin út úr ofnin-
um fullreykt, hengd upp til að kólna, og því næst
pökkuð og send á markaðinn. Sé síldin smá, þarf
hún liltölulega styttri tíma til að reykjast. Eg vil
taka það fram, að karfi og st.einbítur mun vera
mjög góður til reykingar.
7. deild.
20. flokkur: Fiskverzlun og alt þar að lútandi.