Andvari - 01.01.1913, Blaðsíða 88
26
Fiskirannsóknir
gömul síld er oft ekki stærri í apríl—mai, en */2 árs
gömul sild í október, því að á veturna vex bún lít-
ið sem ekkert. Tvævetur síld nær á sama hátt 24
cm, lengd, enda þótt meðaltalið verði líklega að mun
lægra, og þrevetur síld verður jafnvel 30 cm. löng,
meðalstærð að sjálfsögðu töluvert minni; fjögra vetra
síld verður ekki mikið stærri, meðaltal liklega 27—
28 cm. Ur þessu fer slærðarmunurinn á ársflokkun-
um að verða mjög lítill og oft enginn stærðarmunur
á fiskum, sem 5—6 ára aldursmunur er á. Sildin
er samkvæmt því búin að taka út sinn mesta (o:
örasta) vöxt, þegar hún er orðin fjögra til 5 vetra
eða 28—30 cm. löng. Eg heíi áður orðið þess vís-
ari (Skýrsla min í Andvara 1908, bls. 120), að síld-
in fer í fyrsta lagi að verða æxlunarfær, þegar liún
er orðin 26 cm. löng, en alment ekki fyr en hún er
orðin 28—30 cm., og sést þannig, að það fer einmitt
að draga úr vexli hennar, þegar hún hefir náð þess-
ari stærð; en þar sem hún nú yfirleitt nær þeirri
stærð, þegar hún er orðin fjögra til fimm vetra, þá
sýnir þetta að hún verðnr œxlunarfœr o: má teljast
fullvaxin, þegar hún er orðin fjögra til fimm vetra,
og einmitt um sama leyli verður hún það sem menn
kalla stórsíld (hafsíld). Ef til vill verða einstöku
síldir æxlunarfærar á 4. ári.
Ef hinir alþektu slærðarllokkar smásíld (kóp-
síld), miðlungssíld (inillisíld) og stórsíld (haf-
síld) síldarinnar eru annars bornir saman við aldur-
inn,* þá sést það, að smásíld (þar með talin seiðin)
er síld á 1. og 2. ári, miðlungssíld fiskur á 3.—5.
ári og stórsíld síld, sem er 4 vetra eða eldri. Stór
hafsíld er yfirleitt 6—7 vetra eða eldri.
Eg liefi enga síld fundið eldri en 13 vetra, en