Andvari - 01.01.1913, Blaðsíða 201
Fiskisýningin
139
sig saman. Hinsvegar liafa þeir hr. fiskifræðingur
Bjarni Sæmundsson og skipasmiður Bjarni Þorkels-
son báðir skrifað um sj'ningarferð sína í Ægi og
Lögréttu, og sleppi eg því að skýra frá sumu, sem
eg annars hefði gert, þvi það yrði óþörf endurtekning.
Sýningu þessari var lokið 25. ágúst, og liafði hún
þá staðið í 50 daga, og liöfðu 80,000 manns sótt
hana. Inngöngueyrir var 50 aurar um daginn, en
kom þó eigi inn nema rúmar 30,000 krónur, því
margir höfðu ókeypis aðgang. Danska stjórnin veitti
70,000 krónur til sýningarhaldsins, og ábj'rgðist að
auki 30,000 krónur. Til opinberrar þátttöku veittu
Norðmenn 12,000 krónur og Svíar 22,000. Þrátt fyrir
þetta, var það með naumindum að sýningin "bæri
allan kostnað, þurfli lítillega að skerða þær 30,000
kr., er stjórnin lial'ði ábyrgst.
Sýningarsvæðið var í útjaðri borgarinnar, þar
sem nefnist »íslandsbryggja«, sem er afarstórt svæði
afgirt, um 18 vallardagsláltur. Þar voru reist fjöldi
liúsa ásamt þremur stórhýsum, sem voru: Aðal-sýn-
ingarhöllin, þar sem Danmörk hafði miðpartinn, en
Noregur og Svíþjóð endana, vélaskálinn, þar sem alls
konar gangvélar voru sýndar, en meðfram þeirri lilið
hans, er sneri út að höfninni lágu vélabátar sýning-
arinnar hver við annars hlið, og veitingaskálinn, þar
sem menn gátu setið og hvílt sig við ýmiskonar góð-
gæti. Húsin og all sýningarsvæðið var skreytt llögg-
um, blómreitum og ýmsu skrauti. Framan við veit-
ingarskálann var reistur pallur á súlum með hvolf-
þaki yfir, þar sem fjölmennur flokkur lék á liljóð-
færi sýningargestunum til skemtunar. Myndastyttur
Dana-, Norðmanna- og Svíakonunga skreyttu and-
dyri aðaldeilda sýningarhallarinnar.