Andvari - 01.01.1913, Blaðsíða 211
Fiskisýningin
149
5. deild.
15. flokkur: Ýmsar fiskiafurðir: lýsi, hrogn, Iím,
roð; þang og ýms efni unnin úr því.
16. floklcur: Hagnýting fiskiúrgangs, fóður- og á-
burðarefni.
Marga vakningu fékk maður við að skoða ýms
þau efni, sem nnnin eru úr fiskiúrgangi og þangi.
Og tilfinnanlegt er það fyrir okkur Islendinga, sem
köstum svo miklu af verðmætum efnum, þar sem
heita má að við hirðum nær því ekkert af liausum,
dálkum og innýílum úr öllum þeim fiski, er við
öflum, en aðrar þjóðir hagnýta sér alt þetta. Það
er hörmulegt til þess að vita, að til dæmis nú í
sumar, þegar sildarbræðsla byrjaði hér við Eyja-
fjörð, hafa útlendingar séð sér fært að senda heila
farma af síldarúrgangi, í mauki laust í lestinni, til
áburðar alla leið lil Suður-Ameríku, en flesta bænd-
ur hér vantar tillinnanlega áburð, fá ekki meira en
8—12 besla að meðallali af dagsl., í stað þess að
geta fengið 20—30 hesta, ef nægur áburður væri, og
þó er áburðinum fleygt alstaðar að kalla rélt við
nefið á mönnum.
6. deild.
17. flokkur: Meðferð á fiskinum, söltun, rej'king,
þurkun, frystun og geymsla.
18. ílokkur: Kæli- og frystiútbúnaður, ísliús og
geymsla í ís.
19. ílokkur: Vélar o. 11. tilheyrandi þessari deild.
Þessir flokkar höfðu ekkert sérstakt að sýna við-
víkjandi söllun og þurkun á fiski. Aflur á móti var í
sérstökum húsum á sýningarsvæðinu sýnd reyking;
ennfremur lcæli- og frystivélar reknar með gufu.