Andvari - 01.01.1913, Blaðsíða 67
ám og á þeim tíraa, sem hér segir: Af 182 fiskura,
veiddura í Elliðaánum 7. júlí til 12. ágúst; af 72
fiskum, veiddum í Hvítá í Borgarfirði 26. júlí til 6.
ág.; af 49 fiskutn, veiddura í Olfusá 6. til 20. júlí og
12 fiskum, veiddum i HaíTjarðará 18. til 24. júlí. —
Með því fylgdi raæling á iengd allra fiskanna og
upplýsingar ura kyn þeirra, eftir ytri merkjum, því
að innan í fæsta liskana fékk eg að skoða, afþvi að
lax sá, sem ætlaður er til reykingar og eins sá,
sem seldur er lil raatar í Reykjavík, er aldrei ristur
á kviðinn. Eina ytra kynsmerkið, sem auðið er að
fara eftir, er krókurinn á neðra skolli hængsins, en
hann er svo lílið þroskaður á sraálaxi, að oft er
erfitt að segja með vissu, hvort þar sé um krók að
ræða eða ekki.
Nú hefir Dr. Dahl lokið rannsókninni á þessu
hreislri og endursenl mér það, ásamt skilagrein fyrir
því, sem hún leiddi í Ijós. Þessi skilagrein er dreg-
in saman í fjórar töílur, eina fyrir hverja á,«og fylgja
þeim svo nokkrar hugleiðingar og athugasemdir, sem
eg set aðalatriðin úr hér á eftir, og við það mun eg
svo hæta nokkrum athugasemdum frá sjálfum mér.
Dr. Knut Dahl byrjar hugleiðingar sínar með
stuttum kafia almenns efnis og segir svo:
»Fróðleikur sá, sem telst í þessum töflum, gefur
ýmsar mikilsverðar upplýsingar um laxinn í ánum í
suðvesturhluta Islands.
Ef vér tökum dvöl laxveiðanna í ánum fyrst til
íhugunar. þá má draga úl úr löllunum eftirfylgjandi
yfirlit: