Vaka - 01.06.1928, Qupperneq 38
164 THOR THORS: K.IÖRDÆMASKIPUNIN. Lvaka]
að allar stjórnmálaskoðanir myndu gera vart við sig,
og væri þá hverjum flokki, sem nokkur veruleg ítök
ætti, tryggður fulltrúafjöldi i réttu hlutfalli við kjós-
endafjölda sinn. Hvað viðvíkur þingmannafjölda kjör-
dæmanna, þá hygg cg, að ekkert sc þar eðlilegra en
að tölurnar ráði, og enginn ætti að vera færari til að
segja til um þær en Hagstofan. Við þennan útreikn-
ing hlytu alltaf að koma fram brotatölur, en það ætti
að vera hægur vandi að ákveða, hvenær skyldi tekið
tillit til þeirra og hvenær ekki. Enda myndu uppbótar-
sætin jafna það misrétti, er fram kynni að koma.
Helzta mótbáran, er fram kynni að koma gegn þess-
ari nýju skiftingu kjördæmanna, er sú, að sveitirnar
yrðu ver úti en áður. En samkvæmt þeirri kjördæma-
skipun, sein nú hefir lýst verið, yrði hlutskifti sveitanna
að vissu leyti ennþá betra en nú er, vegna jiess, að fleiri
þingmenn yrðu þeim háðir en áður. Sérstaklega yrðu
litlu sveitakjördæmin vel úti vegna þess, að i stað þess,
að nú er þar að eins einn þingmaður, sem þau eiga at-
hvarf hjá, yrðu þeir samkvæmt hinni nýju skipan fjór-
ir til sex. Loks er sú staðreynd, að með nýja skipulag-
inu yrðu þingmenn flestir bæði háðir kaupstöðum og
sveitum; eru því líkindi til, að þeir myndu frekar reyna
að samræma hagsinuni lieggja aðila, og þegar það eigi
tækist, þá að liafa nokkurt tillit til beggja. Hlutdrægn-
inni og skammsýninni ætti þvi að verða erfðara upp-
dráttar, en réttlæti og viðsýni að blása byrlegar.
Að lokum vil ég geta þess, að ég þykist ekki með
tillögum þessum hafa fundið neitt það skipulag, er al-
gerlega sé öllu öðru betra. Ég vildi að eins óska þess,
að þær yrðu athugaðar, ásamt öðrum leiðum, er lík-
legar kunna að sýnast. Það sem aðallega vakir fyrir
mér er það, að bætt verði úr ranglæti kjördæinaskip-
unarinnar og henni komið í heillavænlegra horf. Hitt
skiftir þá síður máli, á hvern hátt þvi marki verður náð.
Thor Thors.