Vaka - 01.06.1928, Síða 104
280
KRISTJÁN ALBERTSON:
[vaka]
fór foringi hins xiýja meiri hluta ekki dult með það í
hlaði sínu, að þessar tillögur myndu ekki koina fram
að nýju.
Það þarf því ekki að efast uin, í hvaða skyni þær
voru fluttar. Og ekki verður sagt, að hér hafi verið
um að ræða meinlausan skrípaleik. Það munaði minnstu
að tillagan uin, að Spánarsamningurinn skyldi brotinn,
næði samþykki þingsins. Enginn þeirra, er greiddu til-
Iögunni atkvæði, gat verið viss um það fyrirfram, að
hún myndi falla. Og enginn veit, hvað af samþykkt til-
lögunnar kynni að hafa hlotizt. Það má minna á það,
að fá lönd í Norðurálfu heita hærri innflutningstollum
en Spánn, og að enginn fiskur er þar lægra tollaður
en íslenzkur, — meðan núgildandi samningur stendur.
Það var því full ástæða til að óttast þrengri kosti að
frömdu samningsrofi. Og þegar á er litið, hve öll af-
koma þjóðar vorrar er liáð fiskverzluninni við Spán,
þá verður vart of sterlct að orði komizt um þá smán,
að tveir flokkar skuli stofna til þess, í því skyni að
véla til fylgis við sig auðginnta kjósendur, að brot sé
framið á viðskiftasamningi við Spánverja, rétt áður en
ætlazt er til að leitað sé fyrir sér um endurskoðun hans.
Eg vil þá minna á tvennt, sem fyrir hefir komið í
þinginu í vetur.
Eins og kunnugt er eru erlendir togarar teknir í
tugatali á ári liverju að ólöglegum veiðum í landhelgi
íslands og dæmdir í háar sektir. Eigendur þeirra í
Þýzkalandi og á Bretlandi kvarta að staðaldri yfir þess-
ari meðferð og ríkisstjórnir beggja stórvelda hafa sent
hingað herskip og erindreka til þess að rannsaka þessi
mál. En ekkert hefir orðið uppvíst, er til þess bendi,
að löggæzla vor á hafinu sé ekki réttsýn, heiðarleg og
hlutdrægnislaus. Vér höfum því enn engin óþægindi
liaft af kvörtunum togaraeigendanna. En fyrir nokkru
barst þeim liðveizla úr óvæntri átt. Dómsmálaráð-
herrann hreyfði i þingsalnum ótviræðum aðdróttun-