Vaka - 01.06.1928, Page 122

Vaka - 01.06.1928, Page 122
248 ORÐABELGUR. [vakaJ sem gerir ísjárvert í mínum augum, að fylltur sé is- lenzkur bókamarkaður af þýðingastóriðju, þótt slíkt kunni að gefast t. d. hér í Ameríku eða Þýzkalandi. Með hinu verður aldrei ofmælt, að létt sé undir með íslenzkum rithöfundum og skáldum, þar sem rækt tungunnar, skáldleg mennt, er hið eina, sem réttlætir tilveru íslendinga sem þjóðar, eins og einatt hefir verið bent á af sjáandi mönnum og skiljandi. Og satt er það, að tungan hefir verið móðurbrjóst þjóðarinnar gegn um aldirnar. En það sómir sér engan veginn, að farið sé að skapa þýðendastétt á íslandi, meðan skáldgefnum mönnum er ekki gefið tækifæri til að gefa sig við skáldskap, nema í hjáverkum. Hugmynd hr. K. A. um ríkisútgáfu á kostnað prestastéttarinnar (ef ég skil rétl Ioka-atriðin í ritgerð hans um andlegt líf) finnst mér hinsvegar of byltingakennd. Auðvitað er það, vægast sagt, þjóðarskömm, að % milljón króna sé sóað árlega í vita-tilgangslausa og ófrjóa prestastétt, þótt þjóðin hafi löngu vanizt að líta í stóiskri undirgefni á þá leið- inda uppáþrengingu. En ríkisútgáfu-hugmyndin lyktar, sem sagt, allt of mikið af jafnaðarmennsku til þess að hugsanlegt sé, að hún verði framkvæmd fyrst uin sinn, enda hæpið að hún hefði uinbætur í för með sér. Er t. d. ómögulegt að ímynda sér, að ríkisútgáfa léti koma fyrir almennings sjónir rit, sem færi í bága við codex ethicus þeirrar stjórnar, sem að völdum situr. Borgaraleg stjórn myndi t. d. ekki leyfa útgáfu rits, sem færi í bága við borgaralegt siðakerfi, og jaínaðar- mannastjórn myndi ekki síður aðhyllast stranga bannskrá. — Annars get ég ekki varizt því að álykta sem svo, að í hugleiðingum hr. Kristjáns Albertsonar um bók- menntaverðlagningu Islendinga kenni nokkurrar gremju og svartsýni. Ég held t. d. að það, sem hann segir um frægð Þórbergs Þórðarsonar og H. K. L., eða réttara sagt ástæðuna til þess, að þeim hel'ir verið léð eyra, hat'i við sáralítil rök að styðjast, sömuleiðis það, sem hann segir um daufheyrn íslendinga við hinum fögru blaðsíðum Sigurðar Nordals í „Hel“. Um viðtökur þær, sem Vefarinn mikli hefir fengið, almennt, get ég að vísu ekkert sagt, þar sem ég hef dvalið erlendis síðan bókin kom út, en mér er óhætt að fullyrða, að íslenzkir lesendur hafa yfirleitt þakkað og metið að verðleilcum
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148

x

Vaka

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vaka
https://timarit.is/publication/363

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.