Vaka - 01.05.1929, Page 63
[vaka]
UM MÁLMA Á ÍSLANDI.
57
STARMÝRI.
Bærinn Starmýri liggur við þjóðveginn austan Lóns-
heiðar við botninn á Álftafirði. Er þaðan % tíma gang-
ur að Þvottá. Áin Selá skilur lönd milli Starmýrar,
Þvottár og Hnauka, og kemur úr svonefndum Star-
mýrardal. í ánni ofarlega eru t’ossar, sem áætlað er að
hafi um 50 hestöfl.
Land þessarar jarðar hefir orðið fyrir mjög sterkum
áhrifum af gosinu úr Svarthömrum, og hnúkum þeim,
sem á bak við þá liggja. Hefir landið þar gengið í
bylgjum, linúkum skotið upp og gangar myndazt.
Yfir Selá liggur þjóðvegurinn skammt fyrir innan
bæinn, og rétt við vaðið yfir ána liggur svo nefndur
Vatnshlíðarháls. í þessum hálsi eru æðar af eirkís, lík-
ur eirkísnum á Svínhólum, hinum megin heiðarinnar.
Eigi gat ég séð þenna stað sjálfur, en fylgdarmaður
minn, Sigurður Einarsson á Hvalnesi, sem hefir verið
fylgdarmaður minn nokkur surnur, fann hann.
Þar næst athugaði ég lágt lierg, sem liggur fast við
Selá, beint neðanundir svonefndri Sjónarhæð, sem er
allstór hnúkur. Er berg þetta mjög kvarzríkt og liggur
svo lágt, að áin mun renna yfir það á vetrum. All þykk-
ur melur liggur ofan á þessu bcrgi. Ég rannsakaði þessa
steintegund liæði með lóðpípunni og deiglubræðslu.
Bræddi ég 30 grömm með blýmenju og fékk gull, sein
ég leysti og felldi með tinklóriði. Eigi gal ég fundið
platínu ineð gullinu.
Fyrir neðan bæinn Stannýri er vík, sem nefnist
Oddsvík, er þar næsli lendingarstaður innan við bæinn.
Við þessa vík, að neðan verðu, er all stór hnúkur, sem
nefnist Björg. Ná þessi Björg að ánni Selá.
í bergsporðinum fast við ána er stór kvarzgangur,
sem liggur upp með hnúknum að ofanverðu. t gangi
þessum virðist vera allmikið af gulli, 20—30 grömm í
tonni. Bræddi ég kvarzinn með blýmenju á venjulegan