Vaka - 01.05.1929, Page 86
80 G. F.: VIÐNÁM — EKKI FLÓTTI. [vaka]
ir vita það, að fólk, sein býr afskekkt, hefir innri sýn
gleggri en hitt, seni menningin matar og setur á gler-
augu. Ef Ragnari þykja mín orð um þetta ómerkileg,
vil ég gefa honum ábæti, sem nauinast verður véfengd-
ur. Ég á við orð Matthíasar skálds um móður sína.
Þegar hann er búinn að lýsa baráttu Skógahúsfreyj-
unnar, gáfum, úrræðum, fórnarlund, og þó fyrst og
fremst vonbrigðum, segir hann:
„En hvað móður mína styrkti og hélt skapi henn-
ar í jafnvægi, var okkur börnunum miður skiljanlegt
...... Og þó hefir okkur þar yfirsézt. H ú n h e f i r
h a f t s í n a h u g g u n o g h r e s s i n g u i n n a n -
f r á
Mér þykir það fara að líkindum, þó að Ragnar E.
Kvaran Játi það ógert að lcjamsa á hrútaberjunum úr
Aðaldalshrauni (það nær heim að bæ mínum). En
„sennilega“ hikar hann við að skyrpa út úr sér aðal-
bláberjunum úr Þorskafjarðarskógum.
Ritað 13. nóvember 1928.
Giiðmundur Friðjónsson.