Menntamál - 01.12.1935, Síða 24
166
MENNTAMÁL
Getemyrs-skólinn í Osló er stofnun l'yrir vanslillta
drengi. Forstöðumaður lians lieitir Hans Christian
Schulz. Er hann óvenjulega viðsýnn maður, góður og
göfuglyndur. Þessi uppcldisslofnun er prýðilegur veru-
staður fyrir vandltvœða drengi. Verkefni eru þar tölu-
verð, utan húss og innan. Þessi stofnun sér um 25 drengi.
Líðan þeirra virtist góð i alla staði. Var þessu skóla-
heimili sæmilega í sveit komið.
Hæli þau, sem ég sá hjá Dönum, voru prýðileg. Um-
gengni öll var ágæt. Börnin voru prúð og litu vel út.
Nægileg verkefni voru fyrir höndum. Skiplist þar á eins
og annars staðar, ýms störf innan húss og utan, bók-
legt nám, leikir og iivíld.
Hvildartímann notaði hver eftir sinu höfði. Sumir
lásu, aðrir léku sér, fleyttu hátum eða smíðuðu eilt-
livað. Iiæli eru lil í Danmörku, þar sem nemendur geta
æft sig á öllum vanalegum störfum úti við, en þar að
auki lært trésmíði, útskurð, járnsmíði, burstagerð, kaðla-
gerð og ýmislegt íleira. Þeir fá einnig tækifæri til að
klifra upp í reiða, hagræða seglum og leggja liönd á
margt, sem sjómenn þurfa að kunna. Eru tæki til þessa
á stöku hæli.
Likt þessu er fyrirkomulagið alls slaðar, í aðaltrið-
um, en eins og gefur að skilja eru hælin mismunandi.
Sum skólaheimilin eða liælin eru handa ungum hörn-
um, sem lítið iiafa brotið. Önnur eru handa ungling-
um, allt frá 10 ára og upp í 20 ára aldur. Hæli handa
telpum og stúlkum eru að nokkuru frábrugðin hælum
handa drengjum og ungum mönnum, en í megindrátt-
um eru þau lilc. Takmarkið er hjá hvorum tveggja að
hjálpa ungmennunum til að fullkomnast.
Víða í liælum þessum er stöðugt reynt á trúmennsku
og sjálfstæði ungmennanna. Eru hlið ólokuð, og geta
því hælisbúar strokið, ef þeir vilja, en það er elcki titt,
að þeir freisti þess. Einnig hafa ungmennin frjálsan