Menntamál - 01.12.1935, Page 27
MENNTAMÁL
169
þekk drengjum þessum. Og í Máshull liafa drengirnir
numið afarmikið. Þeir vinna að akuryrkju, jarðrækt,
garðyrkju og blómrækt. Þeir hafa hjálpað til og hjálpa
til að gera garðinn frægan. Drengirnir i Máshult eru
jafnaðarlegast í fylgd með fullorðnum mönnum og
njóta leiðsagnar þeirra. En þrátt fyrir það er þeim trú-
að fyrir ýmsu, og vinna þeir margt á eigin ábyrgð.
Drengir þessir teikna, mála og skera út í tré. Skreyta
þeir lierbergi sin með ýmsum munum, er þeir hafa
búið til.
Aðstandendur drengjanna heimsækja þá á vissum tím-
um. Gleðjast þeir mjög af þvi, að sjá þá lirausta, lcáta,
starfsama og prúðmannlega. Sumir eiga ekki aðra að
en þá, sem í hælinu starfa.
Þeir drengir, sem liaga sér vel og taka framförum,
eru útskrifaðir úr hælinu eftir vissan thna. Og er þá
reynt að útvega þeim eitlhvað að gera við þeirra hæfi.
Heimilishættir i Másliult eru þannig: Klukkan hálf-
gerigin sjö á morgnana fara drengirnir á fætur, þvo sér
og taka upp rúm sín. Nokkuxár ræsta svefnherbergin,
skólastofur, dagstofur og ganga. Aðrir gera ýmislegt úti-
við, sem nauðsyn er á, þann og þann tíma, þangað til
klukkan er tuttugu mínútur gengin i 8. Fá þá dreng-
irnir nokkurskonar lilla skatt, smurt brauð, mjólk og
kaffi. Þá er sameiginleg morgunbæn i skólasalnum.
Eftir það byrjar kennsla, og stendur hún yfir, þangað
til klukkan tíu. Nú er etinn morgunverður, en eftir það
er unnið xili við og litið eftir ýmsu. Miðdegisverður er
etinn klukkan tuttugu minútur yfir tólf. Klukkan rúm-
lega fjögur fá drengirnir enn hressingu. Er þetta í fjói'ða
skipti, sem einhvers er neytt og næst síðasta skipti yfir
daginn.
Allur drengjahópurinn baðar sig á sumrin í Máshult-
vatninu, áður en miðdegismatur er etinn. Drengirnir
eru syndir vel og liika ekki við að stinga sér og kafa.