Menntamál


Menntamál - 01.12.1935, Page 71

Menntamál - 01.12.1935, Page 71
MENNTAMÁL 213 umstæðum nauðsynlegt hjálparmeðal til þess að ná mikl- um árangri. Hlutverk hverra foreldra í þágu uppeldis- ins er ofar öllum fjármunum. Þau geta undir fleslum kringumstæðum gert meira fyrir hörn siu en allir aðrir. „Enginn kenndi mér eins og þú,“ sagði Matthías um móður sina. Þessi gullvægu orð ættu að vera hverjum foreldrum alltaf í minni, — að barninu verður líklega engin fræðsla jafn minnisstæð og sú, sem foreldrarnir veita þvi. Krafa framtíðarinnar verður: aukinn andlegur þroski hvers einstaklings þjóðanna, því „fyrir andans framför eina fólksins hönd er sterk“. í marz 1934. Björn Guðnason. Þessar merku tillögur hr. Björns Guðnasonar, mega ekki liggja í þagnargildi. Er þess vænzt, að næsta fulltrúaþing kenn- ara ræði þetta mál og taki afstöðu til þess. Ritstj. SldjptúX skobajMX. Stutt athugasemd. I síðasta hefti Menntamála er ritstjórinn, lir. Gunnar M. Magnúss, að reyna að gjöra skop að tillögum sam- eiginlegrar nefndar kennara og presta um kristindóms- fræðslu. Situr það ekki vel á manni, sem kosinn var upphaflega af kennarastéttinni til þess að efla sam- starf milli kennara og presla. Nefndin, sem sagt er að fjalli um kristindómsfræðslu, hefir nú lokið störfum fvrir ári, og það var fulltrúafundur kennara og presta, er samþykkti tillögur allra nefndarmanna í e i n u hljóði ö.júlí f. á. Svo að skop hr. G. M. M. hlýtur

x

Menntamál

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Menntamál
https://timarit.is/publication/376

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.