Menntamál - 01.12.1935, Blaðsíða 82
221
MENNTAMÁL
fyrri kennaraþinga var landinu skipt í 23 kjörsvæði og mættu
kennarar sem fulltrúar fyrir einstök féliig e'ða félagssvæði. Þátt-
takendur á 1. fulltrúaþinginu voru 4(5. Þingið tók afstöðu til
margra merkilegra mála, sem nú eru á döfinni.
Ríkisútgáfa skólabóka
liefir enn verð felld á Alþingi.
Utanfararstyrkur
til kennara hefir verið felldur niður af fjárlögum n. á. Hafa
kennarar þar lotið sömu örlögum og ýmsar aðrar stéttir. Aftur
á móti hefir verið veittur styrkur til námskeiða á vegum kenn-
arstéttarinnar.
Frá Keykjanesi.
í sambandi við skólann i Reykjanesi við ísafjarðardjúp, hefir
verið tekin upp ýmiskonar menningarstarfsemi, t. d. hafa ver-
ið haldin námskeið í garðrækt, matreiðslu og sundi; einnig hafa
héraðsbúar haldið „vordag“, þ. e. unnið að fegrun umhverfis
skólans í samvinnu við skólastjórann. Menntamál hefir fengið
félagsblað skólans, 2G síður fjölritaðar. Heitir það: „Nemand-
inn“, og flytur kvæði, ritgerðir, myndir o. fl.
Þess er vænzt,
að kennarar slyðji að útbreiðslu Menntamála, hver á sinum
stað. Það er einungis komið undir samtökum kennarastéttarinn-
ar, hvað ritið verður vandað og mikið að vöxtum i framtíðinni.
Þökk fyrir liðna árið!
Gleðilegt ár!
Útgefandi: Samband íslenzkra barnakennara.
Ritstjóri: Gunnar M. Magnúss, Elgilsgölu 32.
Afgreiðslu- og innheimtumaður: Pálmi .Jósefsson, Freyjugötu 4(5.
Félagsprentsmiðjan.