Menntamál - 01.04.1937, Qupperneq 76
70
MÉNNTAMÁL
fundi eða annars staðar, þá segi eg: Þeir aöilar skulu gera
þær sakir upp sjálfir.
AS lokum þetta: Sem meðlimur kennarastéttarinnar og kenn-
arasambandsins mótmæli ég harðlega, að blað stéttarinnar sé
notað til árása á einstaka stéttarmeðlimi, með ósönnum og ó-
sæmilegum aðdróttunum og spottyrðum fyrir engar sakir.
Slíku mótmæli ég í nafni kennarastéttar allra siðaðra þjóða.
Helgi Tryggvason.
ATH. — Samkvæmt nánari upplýsingum nnm það hafa verið
ofmælt i greininni „Kennarar og kristindómur“, að Helgi Tryggva-
son og Co. hafi beinlínis „gengið frarn fyrir skjöldu“ á safnaðar-
fundinum í ádeilunum á kennarastéttina. Þessa missögn er skylt
að viðurkenna og afsaka. Eins og Helgi tekur fram hér að fram-
an, töluðu þeir stéttarbræður vorir seint á fundinum. Umræðu-
efni fundarins var stofnun sérstakra kristilegra skóla, en aðal-
rökin fyrir nauðsyn jieirra voru þungar ádeilur á kennara-
stéttina. Þegar nokkrar þvílíkar ádeiluræður liöfðu verið fluttar,
kvödilu kennararnir sér hljóðs, ekki til að mótmæla hinum hóf-
lausu illmælum um stéttarbræður þeirra, heldur til að taka
undir slaðhæfingarnar um nauðsyn sérskólanna, sem rökstudd-
ar höfðu verið áður með svigurmælum um kennarana. Vera má,
að mikillæti hr. Helga Tryggvasonar í þessu máli, fái notið sín
meðal nánustu skoðanabræðranna frá safnaðarfundinum, en
kennarastéttin mun láta sér fátt um finnast.
Hinni hræsnisfullu tilraun H. T. til að snúa út úr grein minni
„Trúartilfinning og barnasálarfræði“, þarf eg engu að svara.
Sú tilraun ber höf. vitni. Ritstj.
Nauðsynlegasta skólaáhaldið
er góður fjölriti. Kennarar og aðrir, sem þurfa jiess með, gela
nú fengið íslenzka fjölrita fyrir kr. 60.00, sem jafnast fyllilega
á við útlenda fjölrita af sömu eða svipaðri gerð, en eru meira
en helmingi ódýrari.
Sýnishorn af fjölritum þessum liggur frammi i fræðslumála-
skrifstofunni i Reykjavík.
Pantanir skulu sendar til Björns H. Jónssonar, skólastjóra
á ísafirði.