Menntamál - 01.04.1937, Qupperneq 82
76
MENNTAMÁL
tískt frelsi fyrir kennara og að losa skólana undan áhrifum kirkj-
unnar og afskiptum pólitískra flokka.
(Ceski Ucitel 7.1.’37).
ENGLAND.
50 barnaleikvellir hafa verið opnaðir í London og verða opn-
ir þrjú kvöld i viku i sumar, undir umsjón sérfróðra manna
og leikstjóra; í tveim skólum hafa verið gerðar tilraunir með að
lýsa leikvelli með ljósvarpi á kvöldleikjum að vetrarlagi.
Fullkomin samvinna hefir nú náðst við Mjólkursölunefnd Lun-
dúnaborgar, svo að unnt sé að fá mjólk handa sem flestum börn-
um. Nú fá því sem næst 325 þús. börn þar mjólk fyrir Vi penny
(h. u. h. 5 aura) á dag.
Tíu ára áætlun um ýmsar umbætur i skólamálum var samin
af 7 sérfræðingum fyrir ári siðan. Allra-flokka ráð tiu ára
áætlunarinnar hefir verið skipað ýmsum málsmetandi forystu-
mönnum og hefur nú starf sitt innan skamms undir forsæti Lady
Astor. Markmið þessa ráðs er með rannsóknum, fulltrúum og op-
inberum ræðuhöldum að fá rikisstjórn og héraðsstjórnir lil að
hrinda tíu ára áætluninni í framkvæmd. Aðalviðfangsefnin verða:
Umbætur á ófullkomnum skólahúsum, afnám fátækraskólanna-
(,,sium“skólanna), betra viðurværi og fleiri ungbarnaskólar.
FRAKKLAND.
Forsætisráðlierrann sneri i útvarpinu máli sínu til opinberra
starfsmanna. Hæklcandi verðlag, sagði hann, hefir í för með sér
minni kaupgelu opinberra starfsmanna. Vaknar ])á sú spurning,
hvort ekki sé þörf á endurskoðun launalaganna. Þetta mál hefir
verið rætt á ráðherrafundum og í viðtali við fulltrúa starfsmanna
hefir forsætisráðherrann hvað eftir annað lofað þessu. Ráðu-
neytið viðurkennir, að kröfur þessar séu réttmætar, en vegna fjár-
hags ríkissjóðs vill það draga málið enn um hríð. í febrúar-
blaði „Ecole liberatrice“ segir Dalmas, ritari S. N., að starfs-
mannafélagið og ráðuneyti alþýðufylkingarinnar geti ekki skoðað
sig sem andstæðinga og því verði að reyna að komast að einhverju
samkomulagi, svo að starfsmenn hins opinbera geti klofið nú-
verandi og aðsteðjandi efnahagsörðugleika.
13. febr. talaði Léon Blum í útvarpið og beindi máli sínu til
starfsmanna ríkisins. Hann sagði, að kröfur þeirra væru rétt-
mætar, en það væri áríðandi fyrir stjórnina að fara gætilega.
Til þess fyrst og fremst að tryggja lánstraust ríkisins, skapa
festu i vöruverði og koma jafnvægi á i fjárlögum, þyrfti hann
að hafa samvinnu við hlustendur sína.
„Vér vitum“, sagði hann, „að þér viljið að stjórnin verði áfram