Menntamál - 01.04.1937, Blaðsíða 83
MENNTAMÁL
77
•við völd og að henni gangi vel. Hjálpið þvi til að vinna bug á
erfiðleikunum, sem þér verðið, i samvinnu við stjórnina, að öðl-
ast betri skilning á. Látum oss i sameiningu leitast við að finna
sanngjarna og skjóta lausn málanna. Allt verður auðvelt, ef
gagnkvæmt traust helzt áfram. Vort traust hafið þér í fullum
mæli og vér vonum að þér haldið áfram að sýna oss yðvart
traust. Vér þörfnumst þess og vitum, að vér höfum verðskuld-
að það“.
ÞÝZKALAND.
í Þýzkalandi hefir „foringinn" ákveðið að stofna skuli nýja
þjóðernissinnaskóla, er nefndir verði Adolfs Hitler-skólar. Verða
þeir einn liður í félagsskap Iiitlers-æskunnar. Verða það sex ára
skólar og lágmarksaldur við inntöku 12 ár. Þeir drengir einir
fá aðgang að skólum þessum, sem skarað hafa fram úr í æsku-
lýðshreyfingu Ilitlers. — Engin skólagjöld fyrir nemendur.
GRIKKLAND.
í Grikklandi hefir félagsskapur opinberra starfsmanna verið
leystur upp með stjórnarúrskurði og eignir hans gerðar upp-
tækar. Eignum þessa félagsskapar á samkv. úrskurðinum að verja
til þess fyrst og fremst að greiða skuldir hans og það sem eft-
ir verður á að renna i styrktarsjóði starfsmanna ríkisins.
JAPAN.
Menntamálaáðherra Japana hefir komið fram með tillögu um
lengingu skólaskyldualdurs barna um 2 ár. Sem stendur er hann
6 ár þar i landi.
PORTÚGAL.
Kennslukonur, sem hafa í hyggju að giftast, verða að fá til þess
leyfi kennslumálaráðherrans; þær verða ennfremur að útvega
vottorð og áhyrgð um siðferði og borgaralega stöðu tilvonandi
eiginmanna sinna og verða tekjur þeirra að vera í samæmi við
tekjur kennslukvennanna.
RÚSSLAND.
Árið 1936 var varið til almennrar fræðslustarfsemi i Rúss-
landi 13,9 billjónum rúblna; þetta ár er húizt við að sú upphæð
verði 18^5 billjónir.
Af þessari fjárhæð er 8.2 billj. ætlaðar til skóla, barnagarða
og barnaheimila og er það um 36,2% meira en árið á undan.
Þessi öri útgjaldavöxtur til fræðslumála á rót sína í því, að nú
er almenn skólaskylda komin til framkvæmda og eykst þvi fjöldi