Menntamál - 01.06.1955, Page 3
MENNTAMÁL
XXVIII 2.
APRÍL—JÚNl.
1955.
ÁRMANN HALLDÓRSSON:
Núgildandi fræðslulöggjöf.
Erindi þetta flutti Ármann heitinn Halldórsson á umræðufundi í
Stúdentafélagi Reykjavikur sunnudaginn 24. jan. 1954. Erindið er
nafnlaust í handriti Ármanns, en í fundargerð stúdentafélagsins er
fundurinn kallaður „umræðufundur um núgildandi fræðslulöggjöf".
Erindið er prentað orðrétt og stafrétt eftir handriti Ármanns. Er þetta
síðasta erindi, er hann flutti. Ræðu þessa bjó hann aldrei til prent-
unar. Á stöku stað virðist vanta orð í, og hefur þeim liér verið bætt
í innan [ ]. Orð, sem ofaukið virðist vera, eru sett innan ( ). Bjarni
Vilhjálmsson bar próförk saman við handrit, og þakka ég lionum
fyrir það.
Annar málshefjandi á fundinum var Jónas Jónsson frá Hriflu.
Ilitstj.
Fyrir um það bil hálf-
um mánuði kom formaður
þessa félags að máli við
mig og mæltist til þess, aö
ég flytti framsöguerindi
um fræðslulöggjöfina frá
1946 og ’47 á fundi félags-
ins. Ég þóttist illa geta
skorazt undan þessum til-
mælum, en tók það fram,
að þar sem ég hefði svo
margt ritað og rætt um
þetta mál áður, mætti hann
ekki búast við neinum nýj-
ungum frá mér í þessu
efni. Hið sama verð ég að
taka fram við háttvirta
fundarmenn.
Sú löggjöf, sem hér er til umræðu og venjulega er nefnd
5