Menntamál - 01.06.1955, Blaðsíða 113
MENNTAMÁL
175
BÓK ARFREGN.
Skúli Þorsteinsson: Börnin hlæja og hoppa. Leiftur h/f
195/.
Ekki verður sagt, að mikill gróandi sé í íslenzkri skóla-
bókaútgáfu, og er það miður farið, svo knýjandi sem
þörfin er á ýmsum nýjungum á þessu sviði og nauðsynleg-
um endurbótum.
Það er þess vegna full ástæða til þess að fagna og þakka
fyrir útgáfu nýrrar bókar, sem Skúli Þorsteinsson, skóla-
stjóri á Eskifirði, hefur sent frá sér og hann nefnir Börn-
in hlæja og hoppa. „Henni er sérstaklega ætlað að vekja
áhuga ykkar (þ. e. barnanna) fyrir náttúrunni, fegurð
hennar, gróðri og dýralífi,“ segir höfundur í formála. Það
er ekki vandalaust verk að klæða þetta efni í lipran og
skemmtilegan búning, svo að börnum þyki girnilegt. En
þetta hefur höfundi tekizt vel. Bókin er fyrst og fremst
hjálpartæki í sambandi við átthagafræðinámið, en hún er
líka ágæt lesbók, skrifuð á skýru og góðu máli. Efni bók-
arinnar er hverjum lesanda hollt, heilbrigt og göfgandi
lestrar- og umhugsunarefni. Bókin á erindi til allra barna
og unglinga. Það litla, sem mætti kannske að bókinni
finna, er það, að höfundur virðist seilast um of og að
óþörfu til lítt þekktra og torskilinna orða. Má vera, að
sumum finnist þetta kostur, einkum fyrir eldri börn, en
fyrir yngri lesendur verður bókin ekki eins lystug fyrir
bragðið.
Kennslutæki og bókmenntir eru sitthvað.
Enginn skóli ætti að láta bókina Börnin hlæja og hoppa
vanta í bókasafn sitt. Bókin er snoturlega út gefin, letur
stórt og greinilegt, pappír góður og prentvillur hverfandi.
Verði bókarinnar er mjög í hóf stillt. Hún kostar kr. 20.00.
Það er Leiftur h/f, sem gefur hana út.
Vilbergur Júlíusson.