Menntamál - 01.06.1955, Blaðsíða 63
MENNTAMÁL
125
Eitt bókasafn.
í flestum barnaskólum Reykjavíkur eru lesstofur, sem
eru opnar 2—-3 stundir á dag. Börnin geta setið þar og les-
ið, en fá ekki bækur lánaðar heim. Þar sem þessi starfsemi
fer fram í venjulegum kennslustofum, er aðstaða öll mjög
erfið. Bæjarbókasafn Reykjavíkur sér lesstofunum fyrir
bókum. Alls munu rúmlega 15 þús. börn hafa sótt lesstof-
urnar árið 1954.
í öllum barnaskólum Reykjavíkur er handbókasafn fyr-
ir kennara. Hver skóli fær á ári hverju verulegan styrk
til kaupa á nýjum bókum. Margt er þar af góðum bókum,
sem nemendur skólanna gætu líka notað, bæði til fróðleiks
og dægradvalar. Má t. d. nefna bækur dr. Bjarna Sæ-
mundssonar, íslendingasögur, íslenzk skáldrit o. fl. En
nemendur hafa engan eða lítinn aðgang að þessum bókum,
og lesstofurnar eru opnar skamman tíma á dag.
Ég tel athugandi, hvort ekki væri rétt að stefna að því
að sameina þessi tvö söfn í eitt, búa vel að því og hafa það
opið mestan hluta dagsins. Þarna mundu börnin geta lært
að nota bókasafn, lært að leita að bókum og í bókum. Skap-
ast mundi þarna gott tækifæri til kynningar á bókmennt-
um, bæði með beinni kennslu og óbeint. Aðstaða nemenda
við nám og starf mundi verða mun betri.
í sumar verður byrjað á nýrri skólabyggingu í Reykja-
vík. Verður þar væntanlega sérstök stofa fyrir bókasafn.
Ætti þar að fást reynsla af því, hvort þessi leið er hyggi-
leg.
Nú má með nokkrum rétti segja, að framanritað sé meir
miðað við stóra skóla en litla. En það er ekki alls kostar
rétt. Að vísu hafa litlir skólar verri aðstöðu til þess að
koma upp fjölbreyttu og stóru bókasafni. Slíkt er svo
dýrt. En aðstaða þeirra til þess að koma upp bekkjarbóka-