Menntamál - 01.06.1955, Page 27
MENNTAMÁL
89
Árangur hennar, sem er nú milli dágóðs og góðs, gæti hæg-
lega verið betri, einkum vegna þess að hún hefur hæfileika
til að tjá hugsanir sínar, svo að ljóst verði, en það auð-
veldar henni afköstin.
2. námskeið frá 27. nóv. til 18. des. 1953.
Verkefni: Saga Evrópu á síðari hluta 19. aldar.
Umsögn: Y. var ekki alltaf jafn iðin, og afköstin báru
þess ljósan blæ. Hún hefur góðan skilning, en árangurinn
er misjafn, vegna þess hve óstöðug hún er.
3. námslceið frá 8. febr. til 31. marz 1954.
Verkefni: Saga Þýzkalands frá loknu tímabili Bismarcks
til vorra daga.
Umsögn: Að því er mér virðist gerir Y. sér enn ekki
ljóst, hve mikið þarf á sig að leggja til að ná góðum árangri
í þessari grein, og þess vegna er hann lakari en skyldi.
Undirskrift kennara.
EÐLISFRÆÐI.
1. námskeið frá 18. maí til 11. júní 1953.
Verkefni: Hljóðið.
Umsögn: Hún tók þátt í kennslustundunum með stöð-
ugum, lifandi áhuga og kom þar fram góður skilningur
hennar og örugg þekking. Árangurinn var góður.
2. námskeið frá 9. ágúst til 29. ágúst 1953.
Verkefni: Segulmagn. Segulsvið. Hitasvið. Hitagjöf raf-
magns.
Umsögn: f kennslustundunum hefur Y. verið í hópi
fremstu nemenda. Skilningur hennar er góður. Auk þess
hefur hún verið iðin og því náð mjög góðum árangri.
3. námskeið frá 15. jan. til 6. febr. 1954.
Verkefni: Rafmagnsfræði.