Menntamál - 01.06.1955, Page 31
MENNTAMÁL
93
ÍSAK JÓNSSON:
Skuggamyndavél með hraðsjá.
Vi8 kynni min af skólum
í Bandaríkjunum veturinn
1951—52 gafst mér tæki-
færi til að sjá margvísleg
kennslutæki og vélar. Ýms-
ar vélar, sem notaðar voru
við lestrarkennslu, vöktu
að vonum athygli mína.
Ekki get ég sagt, að ég
yrði hrifinn af öllu því
,,maskíniríi“. Ein vél var
það samt, sem ég sá strax,
að komið gæti að góðu
haldi í skólastarfi hér
heima. En það var skugga-
myndavél með hraðsjá, og
keypti ég eina slíka fyrir skólann.
Ritstjóri Menntamála hefur beðið mig að segja frá
vél þessari, og er mér ljúft að verða við þeim tilmælum.
' I. SKUGGAMYNDAVÉLIN:
Vélin er 56,5 cm á lengd og 42,5 cm á hæð, og er hún
í handtösku af venjulegri gerð.
ísak Jónsson.
Helztu hlular vélarinnar eru:
1. Pera, 500 kerta, (má vera 750 til 1000 kerta).
2. Holspegill aftan við peruna.