Menntamál - 01.06.1955, Page 112
174
MENNTAMÁL
Rannsóknarráð Noregs.
liefur ákveðiö að verja þessum fjárveitingum og nokkrum öðrum til
C-deildar: 25.500 kr. til sálfræðideildar landvarna undir umsjón V.
Coucheron Jarls til athugana á áhrifum menntunar og umhverfis á
greindarþroskann. 25.600 kr. til Á. G. Skard til rannsókna á um-
hverfi og þroska barna í austurhverfum Osloborgar. 10.300 kr. til P.
Saugstad til rannsókna á vitrænum starfsaðferðum. 25.000 kr. til rann-
sóknarstofu í starfssálarfræði við Verzlunarháskólann. 20.000 kr. til
Odny Graf til að athuga aðferðir við að velja hæfa nemendur í
kennaraskóla. 12.700 kr. til J. Smedslund til að gera sálfræðilegar til-
raunir um nám og námsaðferðir. 4.800 kr. til G. H. Vedeler til athug-
unar á félagslegu hátterni (autoritære holdninger) skólabarna í Oslo.
8.000 kr. til Nic Waal og C. M. Borgen til að leita könnunaraðferða
til undirbúnings geðlækninga (rasjonell psykoterapi). 46.400 kr. til
J. Sandven við uppeldisrannsóknarstofu Oslóarháskóla til eftir-
könnunar á forsagnargildi þroskaprófa á börnum og til undirbún-
ings á rannsókn á félagslegum tengslum (Social holdningsstrukturering)
lijá börnum. 13.705 kr. til útgáfu á riti um rannsókn Evu Nordland
um samband uppeldis og félagslegrar hegðunar. 30.000 kr. til nefnd-
ar þeirrar, er rannsóknarráðið setti til að annast tilraunir í skólum.
27.000 kr. til Per Rand til athugana á erfiðleikum barna við reikn-
ingsnám. 8.000 kr. til H. J. Gjessing til rannsókna, er stefna skulu að
j)ví að koma í veg fyrir lestrarörðugleika. 16.900 kr. til sama manns
og O. Sundet til athugana á alþýðufræðslu í Noregi. 14.200 kr. til S.
Bruun-Gudbrandsen til sakfræðilegra rannsókna meðal unglinga. 1.500
kr. til útgáfu á Nordisk Psykologi og 5.000 kr. til útgáfu á Norsk
pedagogisk tidskrift.
í öðrum deildum hefur einnig verið varið miklu fé til rannsókna á
skyldum sviðum, svo sem sakfræði, félagsfræði, líffræði og geðsýkis-
fræðum.
Úr Nordisk Psykologi, nr. 4. 1954, bls. 135-36.