Menntamál - 01.12.1955, Síða 17
MENNTAMÁL
199
að gera nokkra grein fyrir viðfangsefninu. Börnunum er
skýrt frá því, að leikur og starf sé skemmtilegast, ef maður
er með félögum sínum. „En það er ekki víst, að þið viljið
hafa sömu félaga við landafræðinám og þið viljið leika
ykkur við í frímínútum eða sitja hjá í borðsalnum. I dag
eigið þið að segja frá því, með hvaða félaga þið kjósið helzt
að vinna í landafræði. Fyrst skrifið þið nafnið á þeim,
sem þið viljið helzt vinna með, síðan þeim, sem þið viljið
næst helzt vinna með og þar á eftir þeim þriðja, sem þið
viljið vinna með. Þið megið einungis velja félaga úr bekkn-
um, og þið megið eins velja þá, sem eru fjarverandi í dag.
Enginn af félögum ykkar fær að sjá það, sem þið skrifið.
Þið eigið að skrifa bæði nafn og föðurnafn. Síðan eigið
þið að skrifa með sama hætti nöfn þeirra þriggja félaga,
sem þið viljið helzt leika ykkur við í frímínútum. Ef þið
eruð í vafa um, hvernig á að stafsetja eitthvert nafn, þá
skrifið þið það eftir framburði." í yngri deildum getur
komið sér vel að skrifa nöfn allra nemendanna á töfluna,
bæði vegna stafsetningar og eins til þess að enginn gleymist.
Ef einhver nemandi er fjarverandi um stundarsakir, get-
ur hann lokið þessu verkefni, þegar hann kemur aftur
í skólann.
Þess var áður getið, að tilgangurinn þyrfti að vera skyn-
samlegur og eftirsóknarverður á einhvern hátt. Nemendur
verða að skilja, að markmiðið er að auka afköst þeirra og
gleði af náminu. Að öðrum kosti verður kjörið óáreiðanlegt.
Einnig er æskilegt að gera nokkra grein fyrir því, hvernig
á að hagnýta niðurstöðurnar og hvernig eigi að gera æski-
legar breytingar, stundum einnig, hve lengi einhver til-
tekinn flokkur á að vinna.
Að sjálfsögðu verður kennarinn að hafa áhuga á þessu, ef
börnin eiga að fá áhuga á því. Þó verður hann að hafa
allt hóf á hrifningu sinni, því að mikilvægt er, að próf
þetta sé framkvæmt blátt áfram og án nokkurs umstangs.
Þá skiptir og miklu máli, að niðurstöðurnar hafi einhver