Menntamál - 01.12.1955, Page 49
MENNTAMÁL
231
I Danmörku og Hollandi og þeim öSrum löndum, sem
ég hafði spurnir af, er ljósmeðferð ekki í skólum nema
í sérskólum fyrir veikluð börn.
Sjón- og heyrnartruflanir. Málhelti. Sjóntruflanir eru
mjög algengar hjá skólabörnum. Um 10% þeirra þurfa
að nota gleraugu um tíma eða að staðaldri. Blinda er aft-
ur á móti mjög sjaldgæf hér á landi. Aðeins 5 börn á öllu
landinu á aldrinum 5—14 ára eru blind eða svo sjón-
döpur, að þau geta ekki fylgzt með öðrum börnum í skóla.
Heyrnarleysi hr sömuleiðis fremur fátítt á landinu,
þó er í einum aldursflokki, þeim sem er fæddur 1941, 8
heyrnarlaus börn. Mun þetta stafa af því, að á þeim tíma
voru rauðir hundar óvenju útbreiddir. Á síðari árum hef-
ur því verið veitt athygli, að þær konur, sem sýkjast af
rauðum hundum á fyrstu fjórum mánuðum meðgöngu-
tímans, fæða óvenju oft vansköpuð börn, og er vanskapn-
aðurinn oftast fólginn í sjúkdómum í augum og eyrum.
Það er því mjög til bóta, að telpukrakkar taki rauða
hunda, og ættu allir foreldrar að gera sér far um, að svo
megi verða, því að sjúkdómurinn er í sjálfu sér meinlaus
að öðru leyti en því, sem að framan greinir. í öðrum
aldursflokkum eru aðeins 0—2 heyrnarlaus börn í hverj-
um. Uppfræðsla heyrnarlausra barna fer fram í Málleys-
ingjaskólanum.
I skólum hér á landi, sem víðast hvar annars staðar,
er heyrn prófuð með því, hversu vel barnið heyrir hvísl í
mismunandi fjarlægð. Þetta nægir út af fyrir sig til að
ákveða, hvort barnið hafi nógu góða heyrn til að fygjast
með kennslu, en prófið er ekki nógu nákvæmt til að ganga
úr skugga um, hvort heyrnarskyn barnsins sé að fullu
eðlilegt. Til þess þarf sérstakt tæki, heyrnarmæli (audio-
meter), sem framleiðir hljóð með mismunandi bylgju-
lengd. Dr. Jerlang, sérfræðingur í háls-, nef- og eyrna-
sjúkdómum, ráðunautur við barnaskóla Kaupmannahafn-
ar, tjáði mér, að tilraunir væri verið að gera þar með slík-