Menntamál - 01.12.1955, Side 73
MENNTAMÁL
255
rænu menningarnefndarinnar lagt fyrir ráðherrafundinn,
en menningarnefndin átti stefnu í Reykjavík skömmu
áður en ráðherrafundurinn hófst.
Á fundinum voru samþykktar ályktanir m. a. um a)
Að hvetja norrænu menningarnefndina til þess að gera
athuganir á lesefni unglinga og e. t. v. að leggja fram tii-
lögur um úrbætur á því sviði. b) Að norræna menningar-
nefndin tæki til athugunar tillögu íslands að gefa út sam-
norrænt fræðslurit um menningarmál á Norðurlöndum og
ennfremur að gefa út handbók á einhverju heimsmálinu
um fræðslumál á Norðurlöndum. c) Að veita, eftir ósk
norrænu menningarnefndarinnar, fé til útgáfu á skýrslu
um skólaskipun og umbætur í skólamálum á Norður-
löndum. d) Að vinna að því, að þær reglur gildi um laun
skiptikennara, sem norræna menningarnefndin hefur
mælt með. e) (eftir ósk norrænu menningarnefndarinn-
ar) að börn af norrænu foreldri, sem ekki eru ríkisborg-
arar í því Norðurlandanna, sem þau dveljast í, njóti sömu
styrkja og fríðinda við nám sem heimabörn.
Þá barst fundinum greinargott erindi frá nefnd þeirri,
sem menntamálaráðuneytið danska skipaði 27. jan. s. 1. til
að rannsaka sóðabókmenntir og gera tillögur um að koma
á framfæri betra lesefni meðal barna og unglinga. f nefnd
þessari eru 24 fulltrúar, m. a. fulltrúar fræðslumálastjórn-
arinnar, skólastjóra, bókasafna og dagblaða, sálfræðinga,
rithöfunda, útgefenda o. fl.
Sömuleiðis barst fundinum erindi frá norrænu menn-
ingarnefndinni varðandi tillöguna um að gera yfirlits-
skýrslu um skólamál og umbætur á þeim á Norðurlöndum.
Svo sem áður hefur verið greint frá í Menntamálum hafa
Danmörk, Finnland, Noregur og Svíþjóð skipað sérfróða
fulltrúa í nefndir — sérfræðinganefndir — til að efla
norræna samvinnu um uppeldisfræðileg rannsóknarstörf.
Á fundi í Kaupmannahöfn 22. og 23. apríl s. 1. mælti
nefndin með því, að menningarnefndin safnaði gögnum