Menntamál - 01.12.1955, Page 74
256
MENNTAMÁL
og ynni að því að samin yrði yfirlitsskýrsla um skólamál
og umbætur á þeim á Norðurlöndum. Sérfræðinganefndin
taldi engan vafa leika á því, að mjög hagkvæmt væri, að
gögn þau, sem fulltrúar hinna einstöku landa gætu aflað,
kæmu saman á einn stað. Slíkt myndi veita gott yfirlit
um hin raunverulegu vandamál og viðfangsefni skóla-
manna á Norðurlöndum og myndi eflaust koma að góðu
gagni við frekari þróun og meðferð skólamála í hverju
einstöku landi. Var óskað eftir því, að norræna menning-
arnefndin legði lið við að safna gögnum um vandamálin,
og er þá gert ráð fyrir því, að slíkt gerist í nánu samstarfi
við hinar uppeldislegu rannsóknarstofnanir, sem til eru
í hverju landi. Þess er vænzt, að í yfirliti þessu komi fram
greinargerð um 1) tegundir skóla, 2) viðfangsefni skól-
anna og 3) uppeldisleg vandamál og tilraunir eða áætlanir
um tilraunir í uppeldislegum tilgangi. Tillögum þessum
fylgdi allnákvæm kostnaðaráætlun um samningu og útgáfu
slíkrar yfirlitsskýrslu.
LÖGGJÖF VÁRÐANDI SKÓLA- OG UPPELDISMÁL
Á SÍÐASTA ALÞINGI.
1. LÖG UM SKÓLAKOSTNAÐ 6. mai 1955.
Fyrir atbeina menntamálaráðherra var samið frumvarp til laga
um greiðslu koslnaðar við slióla, sem reknir eru sameiginlega af riki
og sveitarfélögum. Frumvarpið var samþykkt á alþingi 6. maí 1955.
Helztu breytingar, sem gerðar eru með lögum þessum á fræðslulög-
unum 1946, stuðla einkum að því að létta undir með sveitarfélög-
unum og tryggja örar fjárveitingar til framkvæmda, eftir að bygg-
ingar eru á annað borð hafnar, og koma fastari skipun á reiknings-
Iiald og eftirlit með fjármálum og eignum skóla.
Helztu breytingar eru: