Menntamál - 01.12.1955, Page 79
MENNTAMÁL
261
unglinga, sem 3. grein laganna tekur til, úr 18 árum í 21 ár, því
að setja unglingum virka umsjón, er þörf krefur, og örvun til
dómara að líta á persónulegar, sálfræðilegar og félagslegar að-
stæður sakbornings.
f) Lög um breytingu á tilskipun 9. maí 1855, sem lögleiðir á íslandi,
með nokkrum breytingum, lög 3. jan. 1851, um prentfrelsi 6. des.
1954.
Lög þessi eru sett til bráðabirgða, unz lokið er þeirri allsherjar
endurskoðun, er fram fer á gildandi lögum um prentrétt, og kveða
á um skyldur útgefanda eða aðildarmanns prentaðra rita að geta
á liverju eintaki nafns síns, firma og prenstaðar.
Eru lögin samin til aðhalds vegna aukinnar útgáfu sakamálarita.
g) 2. maí 1955 voru samþykkt lög urn breytingu á lögum nr. 102,
30. des. 1943, um lifeyrissjóð barnakennara.
GAGNFRÆÐASKÓLINN í VESTMANNAEYJUM
25 ÁRA GAMALL.
Menntamálum hefur borizt Blik, ársrit gagnfræðaskólans í Vest-
mannaeyjum. Þetta er myndarlegt rit, 88 bls. lesmáls, prýtt fjölda
mynda. Ritstjóri er Þorsteinn Þ. Víglundarson skólastjóri. Hefst ritið
á hugvekju eftir hann, en það er siður í gagnfræðaskólanum í Vest-
mannaeyjum, að skólastjóri eða kennarar flytji hugvekjur þrisvar til
fjórum sinnum á mánuði. „Er þá tekinn tími af hinni daglegu stunda-
skrá til þess að benda nemendum á það, sem miður fer í fari þeirra og
viðurkenna það, sem vel er gert af þeirra hálfu." —Sigurður Finnsson
kennari skrifar greinina Tímamót i merku starfi. Þorsteinn Jónsson
skipstjóri frá Laufási í Eyjum skrifar um Tvenna tima. Þá eru fjör-
legir Jiættir el'tir ýmsa nemendur. Sigfús ]. Johnsen kennari lýsir vor-
dýrð í Eyjum. Arni ur Eyjum minnist Heimakletts og gagnfræðaskól-
ans. Skólaþáttur er eftir Óskar Þór Sigurðsson. Dr. Björn Sigfússon
skrifar um Vestmannaeyjaklaustur. Þá er yfirlit um sögu skólans,
skýrsla síðasta árs auk margs annars efnis.
„FOSSBÚIN N“.
Fossbúinn, skólablað Skógaskóla, hefur einnig verið sent Mennta-
málum. Fossbúinn er gæddur góðum anda, ljúfu Jteli og ljúfmann-
legri orku.