Menntamál - 01.12.1955, Blaðsíða 91
MENNTAMÁL
273
kvæmilegt virðist að hækka námsbókagjald eða sjá útgá£unni fyrir
hæfilegu fé á annan hátt.
Alveg sérstaklega vill fundurinn skora á Ríkisútgáfu námsbóka að
gefa út nýja landkortabók og kennslubók í íslandssögu eftir 1874.
En takist ekki að koma útgáfunni í það horf, sem tímarnir krefjast
að beztu manna yfirsýn, fari fram athugun á þeim möguleika að
gefa útgáfuna frjálsa, eins og tíðkast á Norðurlöndum, enda þurfi
allar námsbækur eftir sem áður samþykki skólaráðs og heimilin fái
bækurnar með svipuðum kjörum og áður.
2. Aðalfundur Kennarafélags Eyjafjarðar telur, að nú, þegar verka-
skipting í þjóðfélaginu er orðin meiri og fjölþættari en nokkru sinni
fyrr, sé orðin brýn þörf á, að upp verði teknar leiðbeiningar um
stöðuval í skólum landsins. Vill hann benda á, að heppilegt muni að
sameina það starfi skólasálfræðinga, en þeirra er einnig orðin brýn
þörf í hinum stærri skólum landsins og þá ekki livað sízt í sambandi
við kennslu og uppeldi tornæmra barna. Skorar fundurinn á fræðslu-
málastjórnina og stjórn Sambands íslenzkra barnakennara að taka
mál þetta til athugunar og úrlausnar sem fyrst.
3. Fundurinn skorar á fræðslumálastjórnina að hlutast til um, að
upp verði tekin bekkjarkennsla á skyldustigi framhaldsskólanna, svo
sem gert er í barnaskólum. Telur fundurinn það uppeldislega nauð-
syn, að sami kennari annist að mestu hverja bekkjardeild, en kennsla
sérfræðinga komi fyrst til greina, er nemendur hafa lokið skyldu-
stiginu.
4. Aðalfundur Kennarafélags Eyjafjarðar lætur í ljós óánægju
yfir skemmtanalifi því, sem Skógrækt ríkisins hefur staðið fyrir í
Vaglaskógi í sumar, og telur funduirnn það ósamboðið svo virðulegri
stofnun sem Skógrækt ríkisins er, að afla fjár með þessum hætti, enda
mun það spilla fyrir vinsældum hennar. Enn fremur telur fundurinn,
að það ætti að friða Vaglaskóg algjörlega fyrir dansleikjum eins og
þeim, er farið hafa fram í Brúarlundi undanfarin ár.
FRÁ KENNARASAMBANDI AUSTURLANDS — K. S. A.
11. aðalfundur Kennarasambands Auslurlands var lialdinn að Búð-
um á Fáskrúðsfirði 10. og 11. september 1955.
Fundinn sóttu 18 kennarar af sambandssvæðinu og auk ]>eirra
Jóhannes Óli Sæmundsson námsstjóri, sem flutti erindi um móður-
málskennslu og reikningskennslu í bamaskólum, og Helgi Tryggva-
son, kennari við Kennaraskólann, sem flutti erindi um skuggamyndir.
18