Menntamál - 01.12.1955, Page 99
MENNTAMÁL
281
9. Sveinbjörn Sigurjónsson, mag. art.: Bragfraði, þátttakendum leið-
beint um bragfræðikennslu með tilliti til þess, sem krafizt er á gagn-
fræðastigi.
Ávörp fluttu þeir llelgi Elíasson, fræðslumálastjóri, er ræddi um
þýðingu slíkra námsskeiða fyrir starfandi kennara, og Magnús Gísla-
son, námsstjóri, en hann ræddi um söfn og skóla og gat þess t. d.,
livernig námsferðir væru skipulagðar á ýmis söfn í Danmörku og
Svíþjóð.
Helgi Þorláksson setti námsskeiðið og gat þess þá, live óhjákvæmi-
leg slík námsskeið þættu erlendis hverjum starfandi kennara, og hér
væri nú stefnt að því, að slík námsskeið væru árlega og nú væri fyrsta
sinni sérstök fjárveiting í fjárlögum til námsskeiða framhaldsskóla-
kennara.
Námsferð.
í beinu sambancli við leiðbeiningar og umræður um sögunám var
farin ein rösklega tveggja tíma ferð á nokkra sögustaði í grennd
Reykjavíkur undir leiðsögn Þeirra Björns Þorsteinssonar og Bjarna
Vilhjálmssonar. Var farið um Fossvog til ICópavogs og þar skoðaðar
rústir þingstaðarins og dysjar. Síðan var haldið til Bessastaða og
Skansinn skoðaður og athygli vakin á Gálgakletti og Gálgahrauni, sem
blasir gegnt Álftanesinu. Að lokum var haldið fram hjá rústum
Garðakirkju, og héldu svo þátttakendur heim margs fróðari unt
merka staði á næsta leiti.
Námsskeiðið sóttu 19 kennarar og skiptust nokkurn veginn að jöfnu
í barna- og gagnfræðakennara.
Ályktanir
Umræður urðu um ýmis viðfangsefni námsskeiðsins, og við lok j>ess
voru þessar ályktanir sanijjykktar einróma:
1. Framburðarliennsla.
Þátttakendur kennaranámsskeiðsins í Háskóla íslands 15,—25. júní
1955 telja brýna nauðsyn, að kennarar á öllum stigum fræðslukerfisins
leggi ríka og almenna álierzlu á að leiðbeina nemendum um góðan
framburð móðurmálsins.
í því sambandi skal sérstaklega bent á þörfina að vinna gegn flá-
mæli, óeðlilegum og óskýrum framburði, gegn útbreiðslu kv-fram-
burðar á kostnað hv. og linmælis á kostnað harðmælis. Þá er nauð-
synlegt að stuðla að varðveizlu ýmissa annarra gamalla framburðar-
mállýzkna þar sem þær eru enn til.
Þátttakendur skora á stjórnarvöld fræðslumálanna að taka þetta
efni til úrlausnar og gefa út fyrirmæli eða leiðbeiningar um frarn-