Menntamál - 01.12.1955, Blaðsíða 103
MENNTAMÁL
285
V. Breytingar á starfsliði skóla:
a) Framhaldsskólar: Auglýstar voru 7 skólastjórastöður og 40 kenn-
arastöður. Umsóknarlrestur var framlengdur um sumar kennarastöð-
ur. Enn vantar kennara í nokkrar stöður.
Þessir skólastjórar haía verið settir við framlialdsskóla:
1. Ást.áður Sigursteindórsson við nýjan gagnfræðaskóla í Reykjavík.
2. Friðbjörn Benónýsson við Gagnfræðaskólann við Lindargötu í
Reykjavík, meðan Jón Á. Gissurarson er í orlofi.
3. Gunnar Bjarnason við Vélskólann i Reykjavík.
4. Jóhann Frimann við gagnfræðaskólann á Akureyri.
5. Ólafur Þ. Kristjánsson við Flensborgarskólann, meðan Benedikt
Tómasson er í orlofi.
6. Sveinbjörn Sigurjónsson við Gagnfrœðaslióla Austurbæjar, Rvík.
7. Sira Þorgrímur Sigurðsson, Staðarstað, við Héraðsskólann að
Reykjum í Hrútafirði.
b) Barnaskólar: Auglýstar voru 29 skólastjórastöður og 74 kennara-
stöður við fasta skóla. Framlengdur var umsóknarfrestur um margar
þeirra. Ekki er búið að setja í allar þessar stöður ennþá og enginn um-
sækjandi kominn um 2 þeirra. Allmargir menn, sem ekki hafa kenn-
arapróf, hafa verið settir í stöður við fasta skóla, þar sem ekki var
völ á neinurn öðrum. Eru þeir menn fleiri en undanfarin ár.
Við barnaskóla í kaupstöðum og stærstu kauptúnunum hafa þessir
verið settir skólastjórar: Þorgeir Ibsen, í Hafnarfirði, Ólafur H. Árna-
son, í Stykkishólmi, Jón Þ. Eggertsson á Patreksfirði, Pétur Sumarliða-
son, Búðum í Fáskrúðsfirði.
Allmiklar breytingar haía orðið á skólastjórum við heima-
vistarbarnaskóla og er lítt sótt um þær stöður. Nýr heimavistarskóli
lók til starfa í Svarfaðardal nú í haust. Skólastjóri þar er Gunnar
Markusson, er áður stýrði Flúðaskóla. Þá hefur og Torfi Guðbrandsson
frá Heydalsá verið settur skólastjóri heimavistarskólans í Árnesskóla-
hverfi, Heimir Þ. Gíslason á Kópaskeri og Björgvin Magnússon að
Jaðri við Reykjavík.
Enn eru flestar umsóknir um kennarastöður í Reykjavík og ná-
grenni, 100 umsóknir bárust um stöður við barna- og gagnfræðastigs-
skóla í Reykjavík, þar af 56 við barnaskólana. — Er það miklu færra
en s.I. ár.
Auglýstar voru um 20 farkennarastöður. Enn vantar nokkra kenn-
ara, einkum þar sem kennslutími er mjög stuttur, 3—4 mánuðir. Yfir-
leitt verður að setja menn, sem ekki hafa kennararéttindi, í farkenn-
arastöður á þessu hausti. — Nánara yfirlit um þetta efni verður hægt
að gera, þegar búið er að setja í allar stöður við skólana. Ejöldi kenn-
ara hefur verið endursettur eða skipaður í stöður, þar sem hin nýju