Menntamál - 01.12.1955, Page 108
290
MENNTAMÁL
Aðstoð til handa vangefnum nemendum. — Fyrir nokkrum árum
var komið á, í nokkrum framhaldsskólum í Glasgow, hjálparbekkjum
fyrir vangefna nemendur, sem höfðu dregizt aftur úr við námið.
Vegna þess hve góður árangur náðist var þetta fyrirkomulag tekið upp
í 29 barnaskólum í tilraunaskyni.
Þýzkaland.
í Hamborg hefur verið komið á námskeiði til að mennta ráðgefandi
kennara, sem er ætlað það lilutverk í skólum sínum að leiðbeina for-
eklrum og kennurum hverju sinni, er erfiðleikar verða á uppeldi
barns. Verkefni námsskeiðsins, sem er 4 missiri, er einkum þjóð-
félagsfræði; einnig var þátttakendum veitt nokkur þjálfun og fræðsla
varðandi uppeldi vandræðabarna.
Verkafólk og háskólinn. — Um fjögra ára skeið hefur Columbía há-
skóli í New York veitt aðgang, í tilraunaskyni, völdum hópi nemenda,
er ekki hafa lokið framhaldsnámi, en taldir eru hæfir til æðra náms.
Nemendur þessir fá aðgang að School of General Studies og geta lokið
Jtaðan prófi (diploma). Þeir eru á aldrinum 20—60 ára. Akveðið
hefur verið að halda áfram með þessa tilraun og útbreiða hana og
veita aðgang allt að 1000 nemendum úr þessum flokki að afloknu inn-
tökuprófi.
Betrumhót á barnablöðum. — Tuttugu og fjórir (af 27) útgefendur
myndskreyttra barnablaða hafa af frjálsum vilja, framnii fyrir rit-
skoðunarnefnd, sem veitt er forstaða af starfsmanni í dómsmálaráðu-
neyti New York borgar, skuldbundið sig til að virða Jtær siðgæðisleið-
beiningar, sem miða að því að eyða úr barnablöðum öllum myndum,
sem eru íorheimskandi, siðspillandi eða á einhvern hátt hættulegar
æskunni.
Irland.
Endurskoðun kennslubólia. — Undirnefnd sú, sem iandssamband
írskra kennara hefur falið að rannsaka kennslubækur Jtær, sem not-
aðar eru í barnaskólum, hefur mælt með allsherjar endurskoðun
kennslubóka í írsku, ensku, sögu, landafræði, stærðfræði og tónlist.
Austurríki.
Verðlaun fyrir barnabœkur. — Ár hvert veitir Vínarborg höfundi
beztu barnabókar ársins verðlaun. Bókin á að vera við liæfi barna á
aldrinum 6—14 ára og ber að stuðla að siðgæðislegu uppeldi þeirra