Skírnir - 01.04.1920, Síða 82
160 Ritfregnir. [Skirnir
rita, sem veita fyllri fræðslu en höf. hefir getað tekið með, t. d.
um æviatriði manna o. fl.
Bókina pryða myndir af þessum mönnum: Magnúsi Ketils-
syni, Jóni Eiríkssyni, Magnúsi Stephensen, Baldvin Einarssyni,
Tómasi Sæmundssyni, Jóni Sigurðssyni og Jóni Guðmundssyni.
Jafnframt eru og í ritiuu eftirmyndir eða sýnishorn ýmsra þeirra
rita, sem bókin fjallar um, 13 talsins.
Eg skal að endingu geta þess, að í ölluui eintökum Lands-
bókasafnBÍns af ritum lærdómslistafélagsins kemur blaðsíðutalan r
15. bindi þeirra heim við það, sem höf. nefnir (bls. 15, 3. neðan-
málsgrein) eftir Joni Sigurðssyni (þ. e. 286 bls.).
Páll Eggert Ólason.
Det nye Nord. Eneste Tidskrift for skandinaviske Samfunds-
interesser. Udkommer 52 Gange aarlig. Abonnementspris Kr. 6
Kvartalet (incl. Postpenge). Udgiver: Oscar Smith. Redaktions-
sekretær: Cand. polit. L. Estrup. Köbenhavn. —
Tímarit þetta hóf göngu sína með apríl s. 1. ár. Viðfangsefm
þess eru: I. útlend stjórnmál, II. Danmörk, III. Noregur, IV-
Svíþjóð, V. ísland, Finnland og fylgilönd Norðurlanda, VI. listir
og bókmentir, VII. stríðs- og friðarbúskapur, VIII. atvinnurekst-
ur og atvinnumál ýmsra þjóða, IX. yfirlit yfir viku hverja, X. her
■og floti. Ræður sinn ritstjóri hverju efninu, Sigfús Blöndal bóka-
vörður því sem Island snertir.
Þetta er hið þarfasta tfmarit. Það er svo fjölfrótt um helztu
nýjungar í hugsuu og framkvæmd á Norðurlöndum og gefur svo
gott yfirlit yfir ýms af þeim málum, sem nú eru efst á dagskrá i
heiminum, að æskilegt væri að það yrði mikið keypt hór á landi
af einstökum mönnum og lestrarfólögum. Það hefir þegar flutt
allmargar greinar um íslenzk efni, eftir Sigfús Blöndal bókavörð,
Bjarna Sæmundsson adjunkt og Björn Símon — það er dulnefnii
og býr þar undir skarpur rithöfundur. G. F.