Heimilisvinurinn - 01.01.1904, Síða 15
15
urslausa tilraun til að vísa dómnum á bug með
uppgerðar sakleysi.
En þeir, som eru til vinstri hliðar, koma oss
raunar minna við hér. Vér erum að tala um
sáluhjálparvissu; og um hana getur ekki verið að
ræða nema hjá þeim, sem eru til hægri hliðar. —
Voru þeir þá vissir um sáluhjálp sína? Ef svo
var, hví segja þeir þá: „Herra, hvenær höfum vér
séð þig nauðstaddan og þjónað þér?“ Hjá þeim
getur það þó ekki verið ávöxtur af inngróinni lífs-
lygi. — Nei. — En hjá þeim er það fáfræði auð-
mýktarinnar um eigið ágæti. Það er ckki það, sem
kemur flatt upp á þá, að þeir eru hólpnir, heldur
hitt, að Jesús segir: „Pér eruð hóipnir sakir alls
þess, er þér hafið gjört í minu nafni.“ Að þeir
voru „ástvinir föðursins" var þeim ekkert nýtt.
Eins víst eins og það var,. að eldurinn eilífi hafði
þegar hér í jarðlífinu brunnið í samvizku hinna
glötuðu, eins áreiðanlega hafði það verið innihald
lífsins og sæla þeim, er hægra megin stóðu, að þeir
vissu að þeir voru ást.vinir föðursins. Fyrir því
vissu þeir og með fullkominni vissu, að þeir át.tu
að erfa ríkið. En það eru dómsástæðurnar, sem
koma flatt upp á þá. Þeir fá ekki skilið, að þeir
séu hólpnir orðnir fyrir það, að þeir hafa í trúnni
sýnt. Jesú kærleika. íað lætur nýstárlega í eyrum
þeirra og ókunnuglega. Þeir hafa ávailt beint aug-
um trúarinnar að eins á óverðskuldaða náð guðs í
Jesú Kristi. Hinu hafa þeir alls ekki veitt eptir-