Heimilisvinurinn - 01.01.1904, Qupperneq 78
78
var dýrindis klukka, og neðst var letrað: „Til hr.
Mac All og frúar hans, seni stofnuðu evangelisku
lýðmissiónina í Frakklandi, frá þakklátum áheyr-
endum 17/i 1892.“ Auk þess var Mac All afhent
bók með myndum af 136 húsum, sem missiónin
hafði yfirráð yfir, og 5300 nöfnum vina hans; reynd-
ar höfðu margir þeirra ekki kunnað að skrifa nöfn
sín og sumir voru blindir, þeir höfðu þá sett kross
í staðinn.
Degi síðar stóð í einu Parísar blaði: „Fað
var reglulega evangeiisk hátið hjer í gær. Lúthersk-
ir, reformertir, methódistar, baptistar, Englending-
ar, Frakkar og Ameríkumenn, hópuðust saman um
Mac All og frú hans — það var regluleg vinahátíð. “
Nokkru síðar sama ár fjekk Mac All kross
heiðursfylkingarinnar frá stjórninni frönsku „fyrir
sjálfsafneitunarfullt mannúðarstarf og atorku við að
efla lýðmenntun."
Árið eptir fjekk Mac All heimfararleyfi, og
Journal des Débates sagði um hann látinn: „Kær-
leikur hans vann hjörtu allra. Hann var orðinn
vel franskur.“
Ótölulegur manngrúi fylgdi honum til grafar,
og þar á meðal heiðurssveit hermanna, af því að
hann var riddari heiðursfylkingarinnar. Á leiðinni
að gröfinni sagði einhver hálfhátt: „Enn sá mann-
fjöldi." Kona, sem stóð rjett hjá, svaraði þegar:
„Þeir verða þó fleiri, sem fagna honum uppi.“
Margir evangeliskir prestar hjeldu ræður, og líkuðu