Iðunn : nýr flokkur - 01.07.1930, Page 60

Iðunn : nýr flokkur - 01.07.1930, Page 60
266 Frá Hallvarði Hersi. IÐUNN sem fær að leika Iausum hala. Eg er að vísu ungur og óreyndur, en þó er mér full-Ijóst, að Hallvarður Hersir hefir spennt bogann of hátt, framkvæmir hugmyndir sínar miskunnarlaust, ýkir þær og afskræmir, að hann gerir tvennt í senn, leikur hlutverk sitt og stendur bak við og horfir á sjálfan sig. Enn þá er hann þó að miklu leyti sjálfum sér samkvæmur. Hátíðlega og seinlega nefnir Hallvarður Hersir nafn mitt og tjáir mér síðan eftir áhrifamikla þögn, að hann hafi sent eftir kvenmanni, fallegri stúlku utan úr Lorry, að hann elski þessa stúlku — og eg megi eiga hana. Mér verða þetta hreinustu vonbrigði, og eg hristi höf- uðið. Eg var farinn að hlakka til, að við Hallvarður Hersir gætum eytt nóttunni saman, rabbað um heim- speki og úthellt hjörtum okkar í fyllstu einlægni. Mér heppnast líka að koma honum á lagið, meðan við sitjum og bíðum. Lífið er eitt allsherjar hyldýpi. Hann hefir hrapað ofan í það, eg er hrapaður ofan í það, við liggj- um öll í því! Það er stórt og yndislegt hyldýpi-------— Þar finnst ekki sú synd, sem hann hafi ekki hvítfágað hjarta sitt í. Hefirðu drepið? spyr eg. Drepið? Hallvarður Hersir lítur á mig með nístandi augnaráði, en svona augnaráð er honum ofviða, í hugarfylgsnum hans er eitthvað, sem gugnar. Eg sannfærist um það, og mér verður ekki um sel. Dýr hefir hann drepið, og dýr eru meira virði en menn, dýr eru heilög. — — — En eg yppti bara öxlum, þetta eru ekki nema vífilengjur, en Hallvarður situr við sinn keip. Hann kveðst hafa skotið aragrúa af fugli uppi á fjöllum, notið þess, að volgt blóðið hefir runnið niður um hendur
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124

x

Iðunn : nýr flokkur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Iðunn : nýr flokkur
https://timarit.is/publication/442

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.