Iðunn : nýr flokkur - 01.04.1929, Side 13

Iðunn : nýr flokkur - 01.04.1929, Side 13
ÍIÐUNN Leiðir loftsins. 107 Handley Page og Vickers. Helzta flugvélategundin, sem Þjóðverjar áttu fyrir stríð, var Albatros, og hafði sú vél þá heimsmet í þolflugi (26 stundir). Þjóðverjar höfðu treyst loftskipunum betur til hernaðar en flugvélum, en áður en stríðinu lauk, höfðu þeir staðreynt, að þetta var misskilningur, enda juku þeir mjög flugvélasmíði síðustu stríðsárin. Höfðu þeir ágætan mann þar sem Hollend- ingurinn Fokker var, og hefir hann gert hverja flug- vélategundina annari betri. Þá má nefna Rohrbach- vélarnar og Dornier-Wal-vélarnar, að ógleymdum heil- málmsvélum Junkers prófessors í Dessau, sem nú eru afar mikið notaðar. Hefir ein þeirra véla komið á ýmsa staði í landinu, og af því að sjón er sögu ríkari, skal henni ekki lýst. Sömu tegundar verða vélar þær, sem halda uppi flugi hér á landi í sumar. Italir standa framar- lega í flugvélagerð og voru fyrstir manna til að smíða stórar vélar, þríþekjur og þaðan af meira, sem báru tugi manna, Caproni-vélarnar. Undir eins og stríðinu lauk, byrjuðu á ný flugafrek ■og á svo miklu stærri mælikvarða en fyr, að sýnt var, að vélarnar höfðu fullkomnast afar mikið. Tíu árum eftir að Bleriot hafði flogið yfir Ermarsund, eða 14. júní 1919, flugu þeir Sir John Alcock og Sir J. Whitton Brown frá New Foundland til Irlands, yfir þvert Atlantshafið, í einum áfanga, á nálægt 16 klukkustundum, og til dæmis um, að almenningur var farinn að líta flugið öðrum augum þá, en árið 1909, má nefna, að þetta flug vakti engu meiri athygli en flug Bleriots. Sama ár flugu Ross og Keith Smith frá Englandi til Ástralíu, 11.294 enskar mílur, á 28 dögum. Framfarirnar fyrstu tíu árin eru auðsæjar af þessum dæmum. Og á árunum eftir stríðið fara stórþjóðirnar að halda uppi reglubundnum flugsamgöngum innanlands og koma
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116

x

Iðunn : nýr flokkur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Iðunn : nýr flokkur
https://timarit.is/publication/442

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.