Iðunn : nýr flokkur - 01.04.1929, Síða 28
122
List.
IÐUNN
náttúrunnar og mannlífsins. Tökum t. d. þessa setningu
hjá Shakespeare: »Hvassir vindar hrista ljúfa Maí-lauka*.
Hér er brugðið upp fyrir okkur mynd af því, sem gerist
oft í ríki náttúrunnar, — en — það eru til margskonar >
»hvassir vindar« og margskonar »ljúfir Maí-laukar«.
Japanskt ástarkvæði eitt hljóðar þannig: »1 þrjú ár
hugsaði ég um hana. í fimm ár leitaði ég hennar. Að-
eins eina nótt hélt ég henni í örmum mínum.«. Hér er
aðeins um þrjár sjálfstæðar setningar að ræða, og þó
eru þær heilt kvæði, þrungið af merkilegri lífsreynslu,
og spegilmynd af lífinu, eins og það gerist og gengur
á ótal sviðum.
Skulum við nú athuga hinar ýmsu tegundir listar og
helstu einkenni þeirra, og byrja á bókmentum yfir höfuð.
Góðar bókmentir verka bæði á hug og hjarta. Hvað
er það, sem gefur bókmentum gildi? Það er hvorki ►
formið eitt, út af fyrir sig, né heldur efnið, út af fyrir
sig, heldur þetta hvorttveggja í sameiningu. Þá er setn-
ing fullkomin, þegar hún opinberar fullkomlega einhverja
hugsun, en er um leið stigmæld (»rytmisk«) og hefir í
sér eitthvað af söng. í>á fyrst verður hún listræn. Þú
munt komast að raun um það, að því þroskaðri sem
maður er í andlegum skilningi, því viturlegra og fegurra
verður það, sem hann segir. Tökum t. d. Krist og Buddha.
Margt af því, sem haft er eftir þeim, er ekki aðeins dá-
samlega viturlegt, heldur og undursamlega fagurt. Það
syngur sig inn í sálir okkar, eins og Ijúfustu ljóð.
Komum við þá næst að leiklistinni. >
Þar eru öll helztu einkenni listar saman komin. Sumir
fagurfræðingar hafa talið leiklistina æðsta allra lista,
vegna þess að hún gæti falið í sér allar aðrar listir.
Þetta mun þó naumast rétt. Annað mál er það, að leik-
istin er miklu merkilegri hlutur en marga grunar, og
k