Iðunn : nýr flokkur - 01.04.1929, Page 57
IÐUNN
Rabindra Nath Tagore í Vancouver.
151
Ég veit ekki hvort vert er að leggja meira af þessari
djúpu speki á lesendur Iðunnar í bili.
3.
Rabindra Nath Tagore kemur til Vesturlanda sem
ríkur höfðingi, sem indverskur fursti — »a prince in
his own land«, eins og hann var kyntur oss áheyrendum,
kemur til að tala fyrir vestrænar yfirstéttir. Hann ferðast
konunglega, með þrjá einkaritara og þjóna á báðar
hendur, hefir einn heila íbúð til umráða á auðmanna-
farrými millilandaskipanna, er veitt viðtaka af auðvalds-
mönnum og fengin til umráða íbúð í glæsilegustu auð-
mannagistihöll Vancouver-borgar, meðan hann stendur
við. Alþýða, — verkamenn koma hvergi nærri honum,
enda á hann ekki erindi við þá. Hann flytur mál sitt
samkvæmt hugsanagangi og með orðavali, sem er
óaðgengilegt skilningi allrar alþýðu, — talar ramm-
skrúfaða háskólagolfrönsku (academic jargon), sem fer
fyrir ofan garð og neðan hjá öðrum en þeim, sem eru
mentaðir í yfirstéttarskólum frá blautu barnsbeini. Hann
minnist sem sagt hvergi í ræðum sínum á hin knýjandi
úrlausnarefni verkamannsins; þjóðfélagsaðfinslur hans er
fikt silkiklæddrar aðalsmannshandar, og þess vandlega
gætt að sigla þannig milli skers og báru, að engin
skoðun, yfirlýsing né tjáning komi í bág við hagsmuni
Yfirráðastéttarinnar. Allar ályktanir hans eru hjúpaðar
töfrakendum, heimspekilegum draumblæ, og yfirleitt farið
vandlega í kringum alla púnkta, þar sem höfuðlínur
skerast í félagsvandkvæðum vorra tíma.
Þó skal hér engan veginn staðhæft, að komur þessa
vitrings úr Austurlöndum til vor séu með öllu ólíklegar
íil áhrifa. Eitt er víst, að þeir, sem hann hefir verið í