Iðunn : nýr flokkur - 01.12.1929, Qupperneq 90
412
Nýjar bækur.
IÐUNN
þegar honum tekst upp. Og óneitanlega hvílir einhver
töfrabjarmi yfir mörgu því, er hann yrkir. Guðmundur
hefir auðvitað leyfi til að hafa sínar skoðanir á mönnum
og málefnum, en betra hefði það verið fyrir orðstír hans,
ef hann hefði sleppt hinu ógeðslega og rangláta níðkvæði
um Lenin (»Fráfall harðstjóra«). Hvað sem annars má um
Lenin segja, er það víst, að honum gekk gott til verka
sinna. Kvæðið hefir enn fremur nauðalítið skáldlegt gildi.
Af fallegum kvæðum í »Kveðlingum« má t. d. nefna:
»Til griðastaðar«, »Erlingur Skjálgsson* og »Sveinbjörn
Gunnlögsson«, að ógleymdri »Ekkjunni við ána«, sem tekin
er hér upp úr fyrsta kvæðasafni höf.: »Ur heimahögum«.
»Tómstundir« eftir Gudrúnu Jóhannsdóttur frá Braut-
arholti er fyrsta bók höf., enda má sjá á henni byrjenda-
mörk. En slíkt er engin furða, einkum ef athugaðar eru
aðstæður höf. Vrkisefnin eru að vísu fábreytt, en inni-
leiki skáldsins er augljós og næm tilfinning þess fyrir
öllu fögru og góðu; kvæðin bera vott um hreina og góða
sál. Þau eru aðlaðandi í öllu sínu yfirlætisleysi, og víða
í þeim eru skáldlegir glampar, einkum í þulunum. Smá-
kvæði eins og t. d. »Vetrarnóttin«, »Vorið« og »Við
fótskör Guðs« eru einkar-snotur, en stærri kvæðin hafa
heppnazt miður. —
Vfirleitt má segja, að ljóða-uppskeran nú í haust sé um
fram allar vonir að vöxtum, en mjög eftir vonum að gæðum-
Jakob Jóh. Smári.
II. Sögur.
Friðrik Asmundsson Brekkan: Saga af Bróður Ylfing. Ut-
gef. Þorst. M. Jónsson. Akureyri.
Jakob Thorarcnsen: Fleygar stundir. Prentsm. Acla. Rvík.
Davíð Þorvaldsson: Björn formaður og fteiri smásögur.
Prentsm. Acta. Rvík.
Guðmundur Gíslason Hagalín: Guð og Iukkan. Útgef. Þorst-
M. Jónsson. Akureyri.
Háttvirtur greinarhöfundur, sem skrifar hér að framan,
virðist frekar ánægður með ljóða-uppskeruna í haust.