Kirkjuritið - 01.09.1949, Page 25
AÐALFUNDUR PRESTAFÉLAGS ÍSLANDS 183
°g sr. Sigurbjörn Einarsson dósent. Ennfremur endurskoðend-
11 r’ sr- Þorsteinn Briem præp. hon. og sr. Friðrik Hallgrímsson
Pr*p. hon.
Fundurinn var mjög ánægjulegur í alla staði.
Sálmur.
Sá tími kemur — komi hann —
að kallar Drottinn sérhvern mann.
Sitt dómsins herra hefur mál
og horfir blítt á þína sál:
„Ég svangur var, þú saddir mig.
Og sorg ég bar, þú gladdir mig.
Ég klæðlaus var, þú klæddir mig.
Og kaun ég bar, þú græddir mig.“
Þú svarar: „Hvenær saddi’ ég þig,
og sorgmæddan nær gladdi’ ég þig,
og kaldan nakinn klæddi þig,
og kaunum hlaðinn græddi þig?“
„Þú saddir, klæddir soltið barn,
við systkin mín varst líknargjarn;
það gjörðir mér, sem gjörðir þeim.
Ég gef þér ríki’ í dýrðarheim."
Svo mælti forðum Mannsins son,
svo mælti Hann, sem er vor von.
Og Jesús talar til vor enn.
Ó, trúið honum allir menn.
Arnór Sigmundsson,
\