Kirkjuritið - 01.09.1949, Blaðsíða 56
214
KIRKJURITIÐ
veitt það prestakall eftir að hafa verið löglega kjörinn af
söfnuðunum.
Óveitt prestaköll eru þessi:
1. Hofteigsprestakall í Norður-Múlaprófastsdæmi, og annast
þjónustu þess eins og áður sóknarpresturinn í Kirkjubæ.
2. Mjóafjarðarprestakall í Suður-Múlaprófastsdæmi, og þjón-
ar því sóknarpresturinn á Nesi í Norðfirði.
3. Sandfellsprestakall í Austur-Skaftafellsprófastsdæmi. Því
þjónar prófasturinn í Bjarnanesi.
4. Kálfafellsstaðarprestakall í Austur-Skaftafellsprófasts-
dæmi, er Bjarnanesprófastur einnig þjónar.
5. Þingvallaprestakall í Árnesprófastsdæmi. Skipta þeir með
sér þjónustu þess, prófasturinn í Kjalarnessprófastsdæmi
og sóknarpresturinn á Mosfelli í Grímsnesi.
6. Staðarhraunsprestakall í Mýraprófastsdæmi. Þar er settur
prestur, séra Stefán Eggertsson.
7. Breiðabólsstaðarprestakall í Snæfellsnessprófastsdæmi, og
þjónar því séra Sigurður M. Pétursson sem settur.
8. Staðarhólsþing í Dalaprófastsdæmi, og þjónar því pró-
fasturinn að Hvammi í Dölum.
9. Brjánslækjarprestakall í Barðastrandarprófastsdæmi, sem
sóknarpresturinn í Flatey þjónar.
10. Sauðlauksdalsprestakall í Barðastrandarprófastsdæmi.
Þar þjónar enn sóknarpresturinn séra Trausti Pétursson,
sem nú hefir fengið veitingu fyrir Djúpavogi, eins og
fyrr segir.
11. Staðarprestakall á Reykjanesi í Barðastrandarprófasts-
dæmi. Þar er settur prestur séra Þórarinn Þór, sem hefir
nú sótt um brauðið. og fær sennilega veitingu fljótlega,
því hann er einn umsækjandi.
12. Hrafnseyrarprestakall í Vestur-ísafjarðarprófastsdæmi, er
sóknarpresturinn á Bíldudal þjónar.
13. Staðarprestakall í Aðalvíkí Norður-ísafjarðarprófastsdæmi
og þjónar því sóknarpresturinn að Stað í Grunnavík.
14. ögurþing í Norður-ísafjarðarprófastsdæmi, er prófastur-
inn í Vatnsfirði þjónar.
15. Árnessprestakall í Strandaprófastdæmi, er hinn setti
prestur í Staðarprestakalli í Steingrímsfirði þjónar.
16. Staðarprestakall í Steingrímsfirði í Strandaprófastsdæmi.