Kirkjuritið - 01.09.1949, Page 68
Séra Friðrik Hallgrímsson dómprófastur,
Við lát séra Friðriks Hall-
grímssonar dómprófasts átti
íslenzka þjóðin á bak að sjá
göfugum syni, sem vann lengi
og vel. Hafði hann gegnt prests-
starfi um hálfa öld og ýmsum
öðrum vandasömum trúnaðar-
störfum, og öllum með sæmd
og prýði.
Séra Friðrik var fæddur í
Reykjavík 9. júní 1872. Voru
foreldrar hans Hallgrímur
Sveinsson, dómkirkjuprestur og
síðar biskup, og kona hans Elina
Sveinsson (f. Fevejle). Hann
ólst upp með þeim, og var heim
ili þeirra almennt talið eitthvert
mesta fyrirmyndarheimilið í bænum. Hann var settur til
náms í Lærða skólanum og útskrifaðist þaðan 1891. Einnig
lagði hann stund á íþróttir og hélt því áfram langt fram á
efri ár, enda teinréttur og hvikur í spori alla æfi. Að loknu
stúdentsprófi sigldi hann til Kaupmannahafnar og nam
þar guðfræði við Háskólann, unz hann lauk embættis-
prófi í þeirri grein 1897. Á þeim árum kynntist hann jafn-
framt kristilegu starfi fyrir börn og unglinga.
Tvo næstu vetur kenndi hann við skóla í Reykjavík og
vígðist prestur að Holdsveikraspítalanum í Laugarnesi
12. okt. 1898. Um þessar mundir var tekið að halda hér
barnaguðsþjónustur, og átti séra Friðrik þátt í því starfi
Séra FriSrik Hallgrímsson