Kirkjuritið - 01.09.1949, Page 73
SÉRA FRIÐRIK HALLGRÍMSSON 231
Kristinfræði, bók handa fermingarbörnum, löggilt til
notkunar fyrir presta við fermingarundirbúning 1930 og
prentuð 4 sinnum.
Bækur ætlaðar börnum og unglingum, 5 bindi (1931—
1935).
Kristur og mennirnir (1935).
Sólver konungur og aðrar sögur (1938).
Guðvin góði og aðrar sögur (1942).
Mærin og riddarinn og aðrar sögur (1943).
Skræpuskikkja og aðrar sögur (1945).
Séra Friðrik lét af dómkirkjuprestsembættinu og pró-
fastsstörfum 1. des. 1945. Var hann þá nokkuð farinn
að þreytast, enda þótt áhugi hans væri jafnan hinn sami
og hann ungur í anda. Voru honum í viðurkenningarskyni
ákveðin áfram full embættislaun.
Síðustu árin vann séra Friðrik að undirbúningi og út-
gáfu nýrrar bókar fyrir börn og messaði annan hvem
sunnudag fyrir fyrsta söfnuð sinn. Einnig starfaði hann
nokkuð fyrir Þjóðræknisfélagið. Að öðru helgaði hann
heimilinu krafta sína. Hann naut yndis og fegurðar æfi-
kvöldsins með konu sinni, börnum og barnabörnum. Man
ég ekki til þess, að ég hafi séð innilegri sambúð með ást-
vinum.
Banalega hans var aðeins fáir dagar og honum ekki
ströng, að því er virtist. Andlátið kom blítt og rólegt að
kveldi 6. ágúst.
Séra Friðrik var víðsýnn maður og frjálslyndur í trúar-
skoðunum, einlægur og hleypidómalaus. Þótti sumum um
of. En það var af því, að þeir skildu ekki, að séra Friðrik
hélt fast við öll meginatriði kristindómsins. Kristur sjálfur
og kenning hans í lífi og starfi um föðurkærleik Guðs
°g bræðralag mannanna var honum allt. Honum var það
ljóst, að hið mikla geymir minningin, en mylsnan og
smælkið fer. Það var honum helgast hjartans mál, að
kirkja Islands mætti vaka trúlega yfir fagnaðarerindi
Krists, svo að arfur kristninnar frá feðrunum og mæðrun-