Kirkjuritið - 01.10.1972, Blaðsíða 77
ýmsu 1 þeim frœðum fleiru en verka-
réttlœti, t.d. orð hans um „habitus"
1. boðorð, 4. liður). — Á nokkrum
stöðum minnist Lúther á dýrlinga,
Barbara, Cecilía og Kristófer. Birgittu
bcenir nefnir hann, en þœr voru eign-
Qðar Birgittu helgu og voru í miklu
áliti. Hann nefnir Róm og St. Jakob
(San Jago di Compostella á Spáni)
sem frœga pílagrímsstaði. Jakobs-
brceður voru eða þóttust vera píla-
Qrímar á leið til San Jago. Voru
þeir taldir til betlimunka. Kartaus,
sem nefnt er í kaflanum um 4. boð-
°rð, 20. lið, merkir klaustur eða
reglu, sem upprunnin er í Charteuse
1 Frakklandi og hafði mikið orð á
Ser fyrir strangleika.
Þrátt fyrir gott minni gat Lúther
auðvitað misminnt, t.d. þegar hann
tilfcerir orð Páls í II. Kor. 3,17, en
segir þau vera í Róm. 8: sjá 1. boð-
orð 5. lið.
Liðirnir innan boðorða eru hér
sýndir með tölustöfum, en voru i
útgáfum Lúthers með bókstöfum, t.d.
i 15. lagi, í 20. lagi. Svigar tákna
í þessari útgáfu, að orðin í þeim
séu athugasemd, en teljist ekki til
textans. Þýðingin er nokkuð nákvœm,
ef til vill sums staðar of nákvœm,
en stundum þýtt lauslega að dcemi
Lúthers.
— Magnús Runólfsson
Um góðu verkin
' fyrsta lagi verður að vita, að engin
góð verk eru til nema þau, sem
^uð hefur boðið, eins og engin synd
er til nema sú, sem Guð hefur bann-
Qð. Því þarf sá, sem vill þekkja og
vinna góð verk, ekki að þekkja annað
en boðorð Guðs. Það segir Kristur
1 Matt. 19: „Viljir þú ganga inn
bl lífsins, þá hald boðorðin." Og
6r unglingurinn spurði í Matt. 19,
bvað hann œtti að gjöra til þess
Qð verða hólpinn, lagði Kristur ekk-
e|7 annað fyrir hann en boðorðin tíu.
^amkvcemt þvi verðum vér að lœra
°ð greina góðu verkin eftir boðorð-
Urn Guðs, en ekki eftir útliti, stœrð
eða fjölda verkanna sjálfra, og ekki
e^'r geðþótta manna eða lögum
manna eða hœtti, eins og vér sjá-
um, að gjört hefur verið og gjört
er enn í blindni vorri með mikilli
fyrirlitningu á boðorðum Guðs.
2. Æðsta og göfugasta boðorðið
er trúin á Krist, eins og hann segir
í Jóh. 6. Þegar Gyðingar spurðu:
„Hvað eigum vér að gjöra, til þess
að vér vinnum verk Guðs?" svaraði
hann: „Þetta er verk Guðs, að þér
trúið á þann, sem hann sendi." Þeg-
ar vér heyrum nú og prédikum þetta,
förum vér fljótt yfir og hyggjum það
lltið og auðgjört, en œttum að dvelja
lengi við það og hyggja vel að
orðum hans. Því að 1 þessu verki
hljóta öll verk að vera tekin saman
í eitt og gœði þeirra að taka við
áhrifum af því eins og láni. Það
267