Jörð - 01.05.1945, Page 77
JORÐ
75
áttu um þjóðarsálina. Danska þjóðin gerþekkti gildi sinnar
ævagömlu menningar. Stéttamunur sá, er enn var eftir fyrir
styrjöldina, hvarf nú og allir skipuðu sér saman, með konung
í broddi fylkingar, til varnar gegn hinum þýzku innbrots-
mönnum. í þrjú ár héldum vér oss þó aðallega við óvirka and-
stöðu og urðum hvað eftir annað að sveigja undan. Margur
danskur maður óttaðist þá um trú sína á sjálfan sig og þjóð
sína, og meðal frjálsra þjóða þóttu Danir heldur litlir
karlar.
En eitt er að snúa sér undan ofviðrinu og annað að brotna
fyrir því.
Og — svo fór að renna upp fyrir mönnum, að einnig Dan-
mörk yrði að gjalda það verð, sem önnur lönd urðu að gera
sér að góðu, ef vér ætturn að komast með óskaddaða sál og
sæmd út úr styrjöldinni. Að því ræki, að yrði að segja hið af-
dráttarlausa nei við Þjóðverja. Hann yrði ekki um flúinn sá
þrautatími, ef vér ættum að fá haldið heiðri vorum — harðrétti
frelsisstríðsins yrðum vér að gangast undir.
Og svo konr þessi örlagastund. Þolinmæðin þraut og danska
þjóðin skipaði sér í röð hinna annarra herteknu landa, gekk
opnum augum og viljandi inn undir allar ógnir þýzks rudda-
skapar og fann frið við sjálfa sig í vitund þess, að hún breytti
rétt, lrvað svo sem á kynni að dynja.
En hvað var það þá, er olli þrotum þolinmæðinnar?
Það var hin forna, norræna tilfinning þess, að vera frjáls-
bornir nrenn í frjálsu landi. Þá er Þjóðverjar vildu þverbrjóta
lrið gamla, rótgróna réttarfar vort, vildu ræna frjálsan nrann
rétti hans til að vera dænrdur af jafningjunr eftir dönskum lög-
unr, er lögtekin væri af Dönum sjálfum. Og það var danskt að
taka samskiptaslitunum á andlegum. vettvangi, en ekki efna-
legum. Menn þoldu ekki lengur við í þessum skrípaleik, er
hafði komið óorði á nöfn senr samvinnu og óvirka andstöðu.
Þarna reis upp gervöll hin danska þjóð, maður við manns
lrlið, því að kvislinga höfunr vér aldrei átt, svo að nefnandi sé.
Konungur og stjórn skildu, að þjóðinni var nóg boðið, og að
hún mundi ekki lengur fást til að horfa upp á undanslátt og
málamiðlanir.