Jörð - 01.05.1945, Side 78
76
JÖRÐ
Hatrið á Nazismanum og öllu hans athæfi, brauzt út í bjart
bál og varð að fá framrás. Og svo kom 29. ágúst 1943.
Hinn 29. ágústmánaðar hefst nýtt tímabil í hernámssögu
Danmerkur. Þjóðverjar skutu konungi og ríkisstjórn til hlið-
ar, en þorðu ekki að taka sjálfir að sér stjórnina. Og danskir
menn, er fengjust til að reka erindi þeirra, fundust hvergi.
Þrátt fyrir þriggja ára ójöfnuð og óorðheldni Þjóðverja
hafði dönsku þjóðinni í aðalatriðum tekizt að varðveita sjálfs-
stjórn sína og réttaríar sitt. Alls staðar höfðu Þjóðverjar rekið
sig á ósvikna danska seiglu og hljóðlátan en öflugan mótþróa,
sem þeir réðu aldrei við, en varð æ verri viðureignar með vax-
andi hatri. Þrýstingur veldur gagnþrýstingi. Og undansláttar-
stjórnarstefnan hafði brýnt baráttuhugina og aukið stöðugt þá
hluta jrjóðarinnar, sem voru fullþroskaðir til friðslita. Vér
höfðum fengið ráðrúm til að skipuleggja víðtæka og æ vax-
andi, atliafnasama skemmdarverkastarfsemi. Og öll „neðan-
jarðar“-starfsemin var reiðubúin að leggja út í baráttuna und-
ir stjórn Frelsisráðs Danmerkur, sem myndað var af samtök-
um allra virkra „neðanjarðar“-félaga, en enginn vissi annars
deili á. „Neðanjarðar"-blöðin voru mörg gefin út í stórum
upplögum og lesin af öllum hlutum þjóðarinnar í sveit og
borg. Skemmdarverkastarfsemin varð meiri en í nokkru öðru
landi í Norðurálfu hins þýzka hernáms og ofbeldis.
Ein af beinustu ástæðunum til þess að Þjóðverjar settu fram
hinar ótæku kröfur sínar 29. ágúst voru verkföllin miklu, sem
gengu eins og flóðalda um landið áður um sumarið. í Esbjerg,
Óðinsvéum og Álaborg sló Jrá í beina bardaga við Þjóðverja.
Menn féllu af báðum, Þjóðverjar tóku rnenn höndum, þvert
á inóti loforðum og samningum. Kröfur Þjóðverja voru: Taf-
arlausstöðvun allrarskemmdarverkastarfsemi, danska lögreglan
ynni í nánu samráði við liina þýzku til varnar verksmiðjum og
járnbrautum, skemmdarverkamenn skyldu framseldir til að
dæmast fyrir þýzkum dómstólum til hegningar í Þýzkalandi.
I stuttu máli: danska stjórnin átti að viðurkenna Gestapo-
aðferðirnar þýzku, lögleiða dauðarefsingu fyrir stjórnmálaaf-
brot og yfirlýsa hernaðarástandi í aílri Danmörku.
Svar konungs, stjórnar, þings og þjóðar var stutt: aðeins