Prestafélagsritið - 01.01.1923, Blaðsíða 34
Prestafélagsritið.
Kristin karlmannslund.
29
fagurt og mikilfenglegt hafi ljómað út frá persónu Jesú, þegar
að vallarsýn, er vér lesum í 1. kap. Jóhannesarguðspjalls um
samtal þeirra Filippusar og Natanaels um Jesú. Natanael hinn
hreinskilni tortryggir frásögn Filippusar og segir: »Getur
nokkuð gott verið frá Nazaret?« Þá svarar Filippus aðeins
þessum orðum: — »Kom þú og sjá!« (Jóh. 1, 47.) — Það
virðist liggja í orðunum, að óspiltur ungur maður þurfi ekki
annað en að líta hann í sjón til þess að fá ást á honum! Og
vér höfum hugboð um hvað til þess þarf. Til hins sama bendir
og frásagan í Lúk. 4., um það þegar Jesús kemur til ætt-
borgar sinnar og stendur upp í samkunduhúsinu til að tala.
Hann heimfærir til sín orðin í Jesaja-spádómsbók 42., og allir
í samkunduhúsinu störðu á hann. Og er hann talaði, fyltust
þeir reiði »og risu upp, hröktu hann út úr borginni og fóru
með hann út á brún fjalls þess, sem borg þeirra var bygð á,
til þess að hrinda honum þar niður. — En hann gekk burt
mitt á milli þeirra og fór leiðar sinnar® (Lúk. 4, 16.—30.).
Vér sjáum í huga vorum hvílíkur þróttur og tign býr í per-
sónu hans, að óvinum hans og ofsækjendum fallast svo hend-
ur, er hann snýr sér við og þeir sjá ásjónu hans, að hann
gengur burtu mitt á milli þeirra, svo sem hann ætlar sér.
Aðal einkenni sannrar karlmensku hafa jafnan verið: Hug-
prýði, stilling, þolinmæði og vandlæti um virðingu sína.
Fyrsta einkennið er hugprýði.
Þegar mynd Jesú er máluð á altaristöflur, er sýnilega lögð
mest áherzla á að sýna blíðu hans, hógværð og fyrirgefandi
náð og ástúð. Og það eru vitanlega þau einkennin, sem
hver Kristmynd á að sýna fyrst og fremst. En jafnframt er því
oft haldið fram, að þessir eiginleikar hindri sanna hugrekki.
Hafi nokkur ósannað þau orð, þá er það Kristur sjálfur.
Lítum t. d. á hann, er hann hreinsar musterið, og athugum
þá sérstaklega frásögu Markúsarguðspjalls, þar sem sagt er
um prestana og fræðimennina, að »þeim stóð ótti af honum«
(Mark. 11, 18.). Athugum framkomu Jesú þegar múgurinn hins
vegar ætlaði að taka hann með valdi til þess að gera hann